tímabundinn rekstrarstuðningur vegna náttúruhamfara i Grindavíkurbæ.
Virðulegi forseti. Þetta er eitt af þeim málum sem kom inn í samstarfsnefndina í tengslum við Grindavík og það er búið að vera mjög gott þverpólitískt samstarf um þetta mál sem ber virkilega að þakka fyrir, allt frá ráðherra yfir í alla flokka sem hafa unnið vel að þessu. Það er alveg satt, eins og hv. þm. Oddný G. Harðardóttir benti á, þetta er ekki nóg. Við þurfum að vera vakandi yfir því að halda áfram að styðja við bakið á fyrirtækjum í Grindavík. Ég treysti því og trúi að sú frábæra samstaða sem hefur verið hingað til um þau mál haldi áfram. Ég veit að við Píratar erum tilbúin til að vinna í því með öllum hinum flokkunum.