tímabundinn rekstrarstuðningur vegna náttúruhamfara i Grindavíkurbæ.
Virðulegur forseti. Ég fagna því að þetta mál sé að klárast og að samstarfið hafi verið svona gott í nefndinni. Við náðum samkomulagi um að framlengja þetta úrræði þannig að það gildi lengur, sömuleiðis að framlengja umsóknarfrestinn. Ég er líka mjög ánægð með að það var brugðist skjótt við athugasemd sem ég hafði hérna í 2. umræðu um að það þyrfti líka að framlengja tímann sem fyrirtæki geta ekki greitt sér út arð sem nemur þessari lengingu á úrræðinu, bara til þess að hafa þetta allt samræmt. Ég vænti þess að við afgreiðum hér á eftir þessar atkvæðagreiðslur út úr nefndinni um breytingartillögu þess efnis. Ég vil taka undir það sem komið hefur hér fram. Mér finnst að við eigum eftir að taka utan um atvinnulífið í Grindavík með heildstæðari hætti og veit að nefndin mun taka til starfa við það verkefni strax að lokinni kjördæmaviku og ég held að við séum nokkuð samhljóma um að hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra (Forseti hringir.) komi fyrir nefndina sem allra fyrst að lokinni kjördæmaviku til að fara yfir frekari áætlanir í þessa veru.