154. löggjafarþing — 77. fundur,  22. feb. 2024.

tímabundinn rekstrarstuðningur vegna náttúruhamfara i Grindavíkurbæ.

675. mál
[19:57]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (um atkvæðagreiðslu):

Forseti. Smá aðvörunarorð og kannski hvatningsorð til bæði samstarfsnefndarinnar og ráðherra. Það er ákveðin vinnuregla hjá okkur Pírötum þegar við samþykkjum einhver svona neyðarúrræði, það þarf að boða til einhverra kosninga og það þarf að ákveða eitthvað strax, að þá höldum við kosningar sem eru stuttar, bara einn dagur, en erum síðan með staðfestingarkosningu sem fer eftir venjulegri þinglegri meðferð. Ég held að það eigi dálítið við hérna. Þó að það sé verið að lengja fresti um tvo mánuði þá má það ekki vera einhvers konar gálgafrestur til að ganga á fyrir uppfærslu á þessu máli í framhaldinu. Ég held við ættum að ganga strax í það að búa til eða skipuleggja eitthvert mál sem er varanlegra á einhvern hátt til þess að við séum ekki alltaf að lenda í því að fá mál inn á núll einn og þurfum að afgreiða þau á núll einni. Þetta er bara smá hvatning til að huga strax að því að gera þetta betur þó að það sé núna gefinn tveggja mánaða aukafrestur.