tímabundinn rekstrarstuðningur vegna náttúruhamfara i Grindavíkurbæ.
Virðulegi forseti. Ég tek undir með öðrum hv. þingmönnum sem hér hafa talað og þakka fyrir gott samstarf í nefndinni og ráðherra og ráðuneyti hvað þetta mál varðar. Við í Framsókn styðjum þetta mál auðvitað af heilum hug líkt og önnur mál sem taka utan um samfélagið í Grindavík þessa dagana og þessa mánuði. Í þessu máli vann nefndin hratt og vel og tók tillit til ýmissa athugasemda sem fram komu í þeirri vinnu. Þetta er auðvitað eitt mál af mörgum og við sem sitjum hér á þingi þurfum að halda áfram að vera á vaktinni og bregðast við ef svo þarf. Ég treysti áfram á þá góðu samstöðu sem við sýnum hér í dag.