kaup á íbúðarhúsnæði í Grindavík.
Virðulegi forseti. Rétt eins og frumvarpið sem við ræddum hér rétt áðan hefur þetta frumvarp, þar sem við öll hér inni, þvert á flokka, höfum komið saman og unnið gífurlega gott starf saman, að sjálfsögðu verið þannig að það eru ekki allir sáttir vegna þess að allir vilja auðvitað reyna að gera eins vel og hægt er. Við í samstarfshópnum komumst að ákveðnu samkomulagi til að ná þverpólitískri sátt. Ég fagna því að við getum gert slíkt hér inni. Þessi sátt og þessi þverpólitíska vinna er búin að halda áfram. Ég tel það af hinu góða og ég treysti því og trúi að þetta frumvarp verði samþykkt hér í kvöld þannig að við eyðum óvissu fyrir stóran hóp Grindvíkinga í kvöld. Því miður verða einhverjir að falla milli skips og bryggju (Forseti hringir.) en ég treysti því að við vinnum saman að því að bjarga þeim aftur á þurrt land.