154. löggjafarþing — 77. fundur,  22. feb. 2024.

kaup á íbúðarhúsnæði í Grindavík.

704. mál
[20:27]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (um atkvæðagreiðslu):

Forseti. Fyrsta stóra skrefið í þessum málum er tekið með þessu máli og er mjög jákvætt. En mig langar að sjá nokkur fleiri skref fram á við því að óhjákvæmilega þarf að taka fleiri skref fram á við. Þau skref sem eru tekin í breytingartillögu hv. þm. Guðbrands Einarssonar eru tvímælalaust hluti af næstu skrefum. Þarna er atvinnuhúsnæði og ýmislegt annað undir sem mun þurfa að greiða atkvæði um seinna. Af hverju ekki núna? Ég sakna þess einmitt að við fáum ekki í rauninni svona hugmyndir og teikningar frá stjórnvöldum sem útskýra fyrir okkur hvað er á döfinni næst því við vitum vel að þetta er ekki allt sem þarf að gera. En þetta er algjörlega nauðsynlegt fyrsta skref.