kaup á íbúðarhúsnæði í Grindavík.
Virðulegur forseti. Í 3. mgr. 1. gr. er fjallað um það skilyrði að lögheimili sé í húsnæðinu en það er einnig heimilt að víkja frá því ef um tímabundnar aðstæður er að ræða. Það er almennt í greinargerðinni og öðru talað mikið um að þetta eigi að vera mjög sveigjanlegt. Ég er dálítið hræddur við það að þetta sé ekki nægilega sveigjanlegt þannig að ég held að það sé mjög mikilvægt að vel sé fylgst með því á næstu mánuðum hvort fólk sé að lenda í því að fá neitun af því að þetta ákvæði um lögheimili var ekki nægilega sveigjanlegt og ef það gerist þá sé komið snöggt inn í þingið og lögunum breytt til þess að það fólk falli ekki milli skips og bryggju.