kaup á íbúðarhúsnæði í Grindavík.
Virðulegur forseti. Það er einmitt markmið laga þessara að eyða óvissu og tryggja búsetuöryggi einstaklinga og fjölskyldna, þeirra sem eiga íbúð í Grindavík og lögheimili. Þetta skiptir miklu máli hér varðandi einstaklinga og fjölskyldur, að þær undanþágur sem hv. þm. Gísli Rafn Ólafsson fjallaði hér um, í 3. og 4. mgr. 1. gr., verður að túlka mjög rúmt til að ná utan um fjölskyldurnar og einstaklingana af því að, eins og við þekkjum öll í þessum sal og kom skýrlega fram við vinnslu þessa máls, þá hjálpast fjölskyldur alls konar að til að tryggja íbúðir og búsetuöryggi innan fjölskyldu og því getur verið ýmisleg samsetning. Fjármálaráðuneytið og hæstv. fjármálaráðherra og nefndin eru búin að bregðast við því með því að breyta í greinargerðinni og í nefndaráliti þannig að ég vona að þetta nái utan um þessi tilvik en fylgist áfram með því.