154. löggjafarþing — 77. fundur,  22. feb. 2024.

kaup á íbúðarhúsnæði í Grindavík.

704. mál
[20:37]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S):

Herra forseti. Það var lögð mikil áhersla á það að við myndum vinna þetta saman og það gekk vel. Það var kallað eftir því frá stjórnarandstöðunni og ég tók það hlutverk alvarlega og mér fannst nefndin gera það öll. Við funduðum saman, við vorum með sameiginlegt vinnusvæði, sérfræðingar úr ráðuneytinu lögðu sig fram um að skýra mál og svara spurningum og það var samstaða um ákveðin atriði sem er ekki sjálfgefið og sérstaklega ekki fyrir stjórnarandstöðu, að sammælast um ákveðin meginatriði sem ég veit að fólk hefur skoðanir á og öll viljum við gera allt það besta fyrir fólk í þessari stöðu og ég met það mikils. Þess vegna verð ég bara að koma hingað upp og segja að það eru mikil vonbrigði að fulltrúi þingflokks Viðreisnar í þeim hópi leggi hér fram breytingartillögu þvert á það sem þverpólitíski hópurinn kom sér saman um (Forseti hringir.) því að það reynir á í svona málum. Ég fagna því að það sé samstaða um málið að öðru leyti (Forseti hringir.) en ég hefði viljað að við hefðum náð að klára verkið eins og við lögðum öll saman upp með í þessari góðu nefnd.