154. löggjafarþing — 77. fundur,  22. feb. 2024.

kaup á íbúðarhúsnæði í Grindavík.

704. mál
[20:39]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P):

Virðulegi forseti. Ég vona að ég sé að koma upp í réttri grein, það er nú stundum sem maður ruglast. En hér, held ég, verið að lengja m.a. dagsetningu um hversu lengi þetta gildir, hvað fólk getur sótt um lengi. Mig langaði bara að þakka efnahags- og viðskiptanefnd fyrir að hafa hlustað á Grindvíkinga þegar kemur að þessu og gefa þeim tækifæri út árið til að svara og þakka að það sé þverpólitísk samstaða um það eins og við sjáum á grænu veggjunum hérna.