154. löggjafarþing — 77. fundur, 22. feb. 2024.
kaup á íbúðarhúsnæði í Grindavík.
704. mál
Virðulegi forseti. Það er greinilegt að ég er aðallega í hrósunum hérna í kvöld, en það er búin að vera góð vinna hérna innan þingsins í að ná fram góðri niðurstöðu. Hér er verið að lengja tímann sem verið er að gefa fólki til að taka ákvörðun um forkaupsréttinn. Við ræddum mikið þessi tvö ár í samstarfshópnum og það er gott að sjá að það var hlustað á umsagnir og annað og þetta var lengt í þrjú ár. Og enn og aftur: Efnahags- og viðskiptanefnd og formaður hennar eiga hrós skilið fyrir þetta.