kaup á íbúðarhúsnæði í Grindavík.
Virðulegi forseti. Ástæðan fyrir því að ég sit hjá í þessari grein er sú að ég tel að við hefðum þurft að hlusta betur á umsögn Náttúruhamfaratryggingar Íslands varðandi það að taka fjármagn út úr henni. Það er nefnilega mjög viðkvæmt hvernig þessi stofnun er sett upp og við þurfum að passa það að ganga ekki á framtíðarmöguleika hennar til að takast á við hamfarir. Það er líka mjög viðkvæmt hvernig stór hluti af því sem hún greiðir út er í gegnum endurtryggingarsamninga sem eru endurnýjaðir á hverju ári. Þar þarf að tryggja að við séum ekki að orsaka það að við fáum verri kjör á slíkum samningum. Ég treysti því og trúi að þetta verði lagað sem allra fyrst, fjármögnun trygginganna, þannig að við lendum ekki í vandræðum.