kaup á íbúðarhúsnæði í Grindavík.
Herra forseti. Við í Samfylkingunni sitjum hjá við atkvæðagreiðslu um 6. gr. og það er einkum vegna 1. mgr. þar sem fjallað er um að ráðherra geti ákveðið að ráðstafa fjármunum úr Náttúruhamfaratryggingu Íslands, allt að 15 milljörðum kr. Það er fjallað um málið í nefndarálitinu en það er samt mikil óvissa um hvernig eigi að meðhöndla sjóðinn. Þess vegna setjum við þennan fyrirvara. En auðvitað, eins og ég sagði um atkvæðagreiðsluna hér í byrjun, höfum við hlustað á skjólstæðinga okkar. Við höfum hlustað á Grindvíkinga og brugðist við og við höfum hlustað á hvort annað í efnahags- og viðskiptanefnd og í samráðshópnum.