154. löggjafarþing — 77. fundur, 22. feb. 2024.
kaup á íbúðarhúsnæði í Grindavík.
704. mál
Virðulegur forseti. Hér er verið að taka af allan vafa um það að ekki megi ráðstafa þessari eign meðan á forgangsréttinum stendur, meðan forgangsréttarhafi nýtir ekki sinn forgangsrétt, og ekki megi selja eignina, leigja hana út eða gera eitthvað við hana annað en það sem forgangsréttarhafi vill. Mér finnst mjög mikilvægt að þetta sé áréttað skýrt í lagatexta og að fólk viti að eignin sé örugg. Ég þakka fyrir að þetta hafi verið sett hérna inn.