fjáraukalög 2024.
Forseti. Það er alltaf gaman þegar er verið að fara í hártoganir. Það er þannig að ríkisstjórnin og stjórnarliðar héldu hérna fram að fjárlögin 2024 væru aðhaldssöm. Umsagnaraðilar sögðu að þau væru það ekki en stjórnarliðar sögðu á móti: Jú víst, og montuðu sig af því. Núna kemur upp úr krafsinu að eftir þessar breytingar eru þau alls ekkert aðhaldssöm. Það er það sem ég er að gera athugasemdir við. Samkvæmt umsagnaraðilum þá eru þau enn þá minna aðhaldssöm og í rauninni ekki lengur hlutlaus heldur þensluhvetjandi. Þar liggur munurinn á því sem umsagnaraðilar hafa sagt um fjárlögin og því sem ríkisstjórnin segir um fjárlögin. Það er tvennt ólíkt. Svo er gott að halda því til haga að þegar Píratar og þegar ég hef verið að tala um það í fjárlagaumræðunni þá hef ég verið að vísa í orð umsagnaraðila um fjárlögin, höfum það algerlega á hreinu. Þannig að vinsamlegast ekki leggja okkur orð í munn, hv. formaður fjárlaganefndar.