fjáraukalög 2024.
Virðulegur forseti. Á stýrivaxtaákvörðunardegi Seðlabanka Íslands, 7. febrúar, kom fram að verðbólga væri áfram þrálát. Það væri óvissa um niðurstöðu kjarasamninga og mögulegar aðgerðir í ríkisfjármálum tengdar þeim og vegna jarðhræringanna á Reykjanesskaga. Við erum hér að bregðast við jarðhræringunum á Reykjanesskaga og það er alveg klárt mál að við erum ekki að minnka óvissuna með því að veita heimild fyrir 30 milljarða láni til að minnka verðbólguna. Ef við komum með 30 milljarða inn í hagkerfið og engar mótvægisaðgerðir mun það auka verðbólguna. Munum það að stýrivextir í dag eru 9,25% í landinu. Það eru hæstu stýrivextir á Vesturlöndum. Það er allt botnfrosið í íslensku samfélagi vegna þess og við ætlum svo að veita heimildir fyrir 30 milljörðum, til hvers? Til að setja inn í íslenskt samfélag, kannski, ef þörf er á. Ég skora á að hafna þessari beiðni og óska eftir því að fjármálaráðherra komi með beiðnina ef virkilega er þörf á því. Við eigum ekki að stuðla að aukinni verðbólgu í þessu samfélagi.