fjáraukalög 2024.
Virðulegi forseti. Hv. þm. Stefáni Vagni Stefánssyni leist ekki á hugmyndir mínar um skatta, það væri allt í lagi að fara í lán, en kannski getum við sameinast um þriðju leiðina til að draga úr þenslu og passa að hér verði ekki mikil verðbólga í þessu. Mér reiknast svo til að þetta séu sirka þrjú ráðuneyti sem við þyrftum að skera niður. Ef við fækkum ráðherrunum niður í níu þá spörum við sirka 30 milljarða og þá erum við bara komin með ansi mikið af peningum til að nota í Grindavík. En mér sýnist hæstv. ráðherrar horfa á mig með dauðaaugnaráði, enda lagði ég til að einhverjir þeirra þyrftu að tapa í stólaleiknum.