greiðsluaðlögun einstaklinga.
Forseti. Við erum hér að ræða löngu tímabærar breytingar á lögum um greiðsluaðlögun einstaklinga, sem eru nr. 101 frá árinu 2010. Nú man ég mjög vel eftir gildistöku þessara laga. Þau tóku gildi beint í kjölfarið á hruninu sem varð á Íslandi og varpaði skýrara ljósi heldur en ég held að hafi verið áður á það hversu fá úrræði voru til í okkar kerfi fyrir fólk sem er í miklum greiðsluvanda. Lögin spruttu þó ekki út úr bankahruninu heldur höfðu verið á döfinni mjög lengi en hafði einhvern veginn ekki verið komið í verk. Sú saga er svo sem áhugaverð.
Til að byrja með vil ég fagna þeim breytingum sem við erum að gera á þessum lögum. Þær eru tímabærar. Verið er að fella brott úrelt ákvæði laganna en jafnframt er verið að auka vernd skuldara fyrir þeim erfiðleikum og áföllum sem fylgja því að lenda í fjárhagslegum vandræðum sem eru manni ofviða.
Mig langar að grípa aðeins niður í greinargerðina með frumvarpinu vegna þess að þar er farið mjög fallega yfir söguna, tilurð þessara laga og tilefni lagasetningarinnar, með leyfi forseta:
„Lög um greiðsluaðlögun einstaklinga voru sett árið 2010, þar sem knýjandi þörf var fyrir úrræði til að takast á við þann vanda sem til kom vegna bankahrunsins árið 2008 og efnahagskreppunnar sem fylgdi í kjölfarið. Markmiðið með lagasetningunni var jafnframt að lögfesta varanlegt úrræði til framtíðar …“ — Þetta var því ekki bráðabirgðaúrræði til þess eingöngu að berjast við afleiðingar hrunsins heldur snerist þetta um að búa til úrræði til framtíðar. Ég gríp aftur niður í greinargerðina, með leyfi forseta:
„… fyrir einstaklinga í verulegum greiðsluerfiðleikum en Ísland innleiddi síðast allra Norðurlandaþjóða slíkt úrræði. Mikil reynsla hefur skapast og hafa yfir 8.700 umsóknir um greiðsluaðlögun borist embætti umboðsmanns skuldara frá upphafi. Á bak við hverja umsókn getur verið annars vegar einstaklingur og hins vegar sambýlisfólk eða hjón og eru því fleiri einstaklingar sem hafa sótt um úrræðið en fjöldi umsókna segir til um. Því er ljóst að um mikilvægt úrræði er að ræða fyrir einstaklinga í fjárhagserfiðleikum.“
Önnur ástæðan fyrir því að þessi lög hafa verið mér ofarlega í huga allt frá upphafi er sú að í fyrstu kærunefnd greiðsluaðlögunarmála naut ég þess heiðurs og þess trausts að vera skipuð nefndarmaður í þeirri nefnd en nefndin var sú fyrsta sinnar tegundar hér á landi. Ég var svo sem ekki gömul, hvorki að árum né starfsreynslu, en lögin voru góð. Fyrstu árin þurfti sannarlega að gera ákveðnar minni háttar breytingar til að þau gætu þjónað sínum tilgangi en það gekk almennt vel fyrir sig. Það sem kom einna mest ánægjulega á óvart í störfum kærunefndar greiðsluaðlögunarmála var hversu árangursríkt úrræðið reyndist til þess að vera raunverulegt úrræði fyrir raunverulega einstaklinga í raunverulegum vandræðum. Ég ætla að grípa aðeins niður í greinargerðina, með leyfi forseta:
„Lögin hafa enn ekki sætt endurskoðun …“ — þ.e. heildarendurskoðun, það hafa ýmsar breytingar verið gerðar — „… en að mati embættis umboðsmanns skuldara er mikil þörf fyrir endurskoðun laganna. Hjá embættinu hefur byggst upp mikil og góð þekking og reynsla á framkvæmd laganna, hvaða ákvæði þeirra gagnast vel og jafnframt hvaða ákvæðum laganna þyrfti að breyta, fella brott eða bæta við lögin til að þau nýtist sem best til að stuðla að þeim markmiðum sem þeim er ætlað að ná. Markmiðið með breytingunum er að betrumbæta úrræðið, gera það heildstæðara og gera málsmeðferðina skýrari og skilvirkari, umsækjendum til hagsbóta. Úrelt lagaákvæði verði felld brott, breytingar gerðar á málsmeðferð og meðferð krafna er standa utan greiðsluaðlögunar og einnig verða gerðar umbætur og orðalagsbreytingar til að gera ákvæðin skýrari.“
Ég ætla aðeins að skýra hvað er átt við hér. Það vill nefnilega svo til að í greinargerðum með lagafrumvörpum frá þessari ríkisstjórn er gjarnan haft orðagjálfur af þessu tagi án þess að það endurspegli raunveruleikann, svo sem orðalag um skilvirkni og betrumbætur á málsmeðferð og annað sem þjónar öfugum tilgangi. En það er önnur saga, í þessu tilviki er þetta rétt. Í þessu tilviki er verið að gera góðar breytingar á tiltölulega góðu kerfi. Með þessum breytingum sem við ræðum hér í dag er raunverulega verið að bæta framkvæmdina með breytingum á málsmeðferð en ekki síst verið að bæta stöðu skuldara. Það er verið að breyta meðferð ákveðinna krafna. Alveg frá upphafi hafa verið ákveðnar undantekningar í lögunum frá því hvaða kröfur geta komið inn í greiðsluaðlögunarsamning. Það sem gerist þegar einstaklingur fær samþykkta umsókn um greiðsluaðlögun er að umsjónarmaður á vegum umboðsmanns skuldara tekur málið í sínar hendur og í samvinnu við skuldarann aðlagar hann greiðsluskyldu skuldarans að greiðslugetu hans. Í greiðsluaðlögunarsamningi er hægt að kveða á um uppskiptingu greiðslna, niðurfellingu innheimtu kostnaðar og vaxta og það er hægt að kveða á um niðurfellingu ákveðinna skulda. Ákveðnar skuldir hefur hins vegar þótt eðlilegt að undanskilja. Sem dæmi má nefna refsiviðurlög, sektir og annað slíkt. Námslán voru m.a. tekin inn í þessar undantekningar frá upphafi en námslán standa fyrir utan greiðsluaðlögun. Þá eru þar ýmsar aðrar opinberar skuldir, svo sem meðlagsskuldir og skuldir á opinberum gjöldum og annað slíkt. Það sem það þýðir að þetta standi utan greiðsluaðlögunarsamnings er að hægt er að gera ákveðnar ráðstafanir, það er hægt að gera ákveðna áætlun um greiðslu þessara krafna en það er t.d. ekki hægt að fara fram á niðurfellingu eða annað slíkt. Ég gríp aftur niður í greinargerðina, með leyfi forseta:
„Úrræðið um greiðsluaðlögun einstaklinga hefur sannað gildi sitt en löggjöfin þarf að þróast í takt við breytt umhverfi og þarfir umsækjenda, sem margir eru úr öðrum samfélagshópum og í annarri stöðu en áður var. Þegar lögin voru sett árið 2010 voru margir umsækjenda um greiðsluaðlögun fasteignaeigendur sem voru í vanda vegna húsnæðislána og yfirveðsetningar. Nú eru flestir umsækjendur á leigumarkaði og margir eru öryrkjar.“ — Hvað segir það um okkar samfélag? Ég held áfram, með leyfi forseta:
„Með frumvarpinu eru lagðar til ákveðnar breytingar með það að markmiði að fleiri geti leitað greiðsluaðlögunar.“ — Vegna þess að þarna er verið að taka til greina ábendingar umboðsmanns skuldara sem hefur þurft að synja einstaklingum um greiðsluaðlögun sem augljóslega þurfa á því að halda og hafa ekki önnur úrræði til að losna út úr þeim vanda sem þeir hafa af einni ástæðu eða annarri komist í. Með leyfi forseta:
„Þetta er m.a. gert með því að rýmka skilyrði um búsetu og lögheimili á Íslandi og breytingu á aðstæðum sem geta leitt til synjunar á umsókn um greiðsluaðlögun. Þá er lagt til að málsmeðferð vegna breytinga á samningum til greiðsluaðlögunar verði breytt skuldurum í hag til að auðvelda einstaklingum að standa í skilum við samninga og fá samningi sínum breytt þegar þörf er á.“
Það er nefnilega markmið greiðsluaðlögunarferlisins að fólk sannarlega standi í skilum með sínar skuldbindingar vegna þess að það viljum við að sjálfsögðu öll gera en það þarf að vera gert með þeim hætti sem skuldarinn ræður við. Það sem mér hefur alltaf þótt fallegt við embætti umboðsmanns skuldara, hafandi sem lögmaður haft skjólstæðinga sem hafa átt í samskiptum við ýmsar stjórnsýslustofnanir hér á landi, er að það embætti er eitt þeirra sem mér hefur þótt einna mest standa undir nafni, umboðsmaður skuldara, m.a. með þeim tillögum að breytingum á lögunum sem koma að stóru leyti frá umboðsmanni skuldara sjálfum og er hér í rauninni fallist á. Þessar tillögur lúta akkúrat að því að gæta hagsmuna skuldara. Umboðsmaður skuldara er að sinna sínu hlutverki sem umboðsmaður skuldara. Þá er ýmislegt annað sem hefur breyst í samfélaginu. Ég held aðeins áfram í greinargerðinni, með leyfi forseta:
„Í frumvarpinu er jafnframt stefnt að því að bregðast við þeim aðstæðum sem nú eru uppi í þjóðfélaginu þegar greiðslubyrði veðlána fer hækkandi vegna hás vaxtastigs og er því lagt til nýtt ákvæði um gjaldfrest eða lægri afborganir veðlána. Um nýmæli er að ræða þess efnis að umsjónarmanni greiðsluaðlögunar verði heimilt að leggja til í samningi um greiðsluaðlögun að greidd verði tímabundið lægri mánaðargreiðsla af veðkröfum eða veittur gjaldfrestur á þeim, ef óveruleg eða engin greiðslugeta er til staðar og uppi eru sérstakar eða tímabundnar aðstæður. Skal þá tímabil breytts greiðslufyrirkomulags samkvæmt ákvæðinu alla jafna ekki vera lengra en eitt ár.
Einnig eru lagðar til breytingar á málsmeðferð vegna yfirveðsettra fasteigna, með vísan til þeirrar reynslu sem hefur skapast, en mæta þarf vanda þeirra sem glíma við yfirveðsetningu og geta ekki staðið undir skuldbindingum sínum til framtíðar. Í frumvarpinu er því lagt til að tenging við lög um tímabundna greiðsluaðlögun fasteignaveðkrafna á íbúðarhúsnæði, nr. 50/2009, verði felld brott. Einstaklingar þurfi því ekki lengur að óska eftir því hjá sýslumanni að afmá veðbönd af yfirveðsettum eignum, þegar minna en þrír mánuðir eru til loka tímabils greiðsluaðlögunar. Þess í stað er lagt til að hlutverk sýslumanns færist yfir til umboðsmanns skuldara samkvæmt nýjum reglum um að afmá veðréttindi. Lagt er til að mat á yfirveðsetningu fasteignar fari fram á sama tíma og greiðsluaðlögunarumleitanir standa yfir.“
Ég geri smá hlé á tilvitnuninni. Það sem verið er að gera hér er að það er verið að mæta aðstæðum sem eru í samfélaginu okkar. Það sem endurspeglast líka í þessu frumvarpi og þessari greinargerð, sem lýsir tilefni þessara laga, er að það endurspeglar svolítið samfélagið. Það endurspeglar þær aðstæður sem skapaðar hafa verið í samfélaginu með óábyrgri fjármálastjórn og öðru sem hefur leitt til gríðarlega hás vaxtastigs.
Nú er ég að falla á tíma en ég ætla að fara örstutt yfir þær breytingar sem verið er að leggja til í þessu frumvarpi. Það sem vekur einna helst athygli og er sennilega eitt af því sem mun hafa áhrif á sem flesta eru breytingar á meðferð ákveðinna krafna sem nú standa utan greiðsluaðlögunar — og standa svo sem áfram utan greiðsluaðlögunar en það verður hægt að kljást við greiðsluvanda einstaklingsins með ákveðinni meðferð þessara krafna, með leyfi forseta:
„Lagt er til að gerðar verði breytingar á núverandi f-lið og i-lið 1. mgr. 3. gr. …“ — þar sem er upptalning á þeim köflum sem standa utan greiðsluaðlögunar — „… með það að markmiði að gera greiðsluaðlögun að heildstæðara úrræði.“
Heildstæðara úrræði vegna þess að það sem gerist þegar kröfur standa utan greiðsluaðlögunar samkvæmt lögunum er það að skuldari kemur til umboðsmanns skuldara, óskar greiðsluaðlögunar vegna greiðsluvanda og kannski einungis brot af þeim skuldum sem eru að buga hann falla undir samninginn en restin stendur. Það dregur augljóslega úr áhrifum þessa úrræðis fyrir mjög stóran hóp. Þarna eru það ekki síst námslán sem vega ansi þungt og eru gerðar ákveðnar úrbætur á ákvæðum hvað meðferð þeirra krafna varðar með þessum lagabreytingum þó að enn lengra sé gengið í breytingartillögu 1. minni hluta við frumvarpið þar sem hreinlega er lagt til að fella út f–i-lið sem eru upptalning á kröfum sem standa utan. Þar er í rauninni verið að leggja til að þessar kröfur falli innan greiðsluaðlögunarsamnings. Ég sé í sjálfu sér ekki rök gegn þeirri breytingu en við getum rætt hana síðar. Þá er ég fallin á tíma en held áfram í næstu ræðu.