greiðsluaðlögun einstaklinga.
Virðulegur forseti. Við ræðum hér mikilvægt mál. Mér fannst mikilvægt að koma hingað upp vegna þess að málefni fatlaðs fólks og samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks standa mér nærri. Þegar ég les umsögn ÖBÍ um þetta mál þá langar mig að vekja athygli á því sem mér hefur kannski ekki fundist koma nægilega vel fram í þessari umræðu hingað til. Það er þannig, með leyfi forseta, að örorkulífeyrisþegar voru „45% þeirra sem leituðu greiðsluaðlögunar árið 2023.“ Þar segir enn fremur, með leyfi forseta:
„Sá hópur hefur lítil sem engin bjargráð til að vænka hag sinn og staða þeirra fer sífellt versnandi.“
Þetta er eitthvað sem er hægt að taka undir og er auðvitað alveg hræðileg þróun. Við höfum verið að sjá í könnunum sem hafa verið gerðar að allt að 80% öryrkja neiti sér um læknisaðstoð og eigi gríðarlega erfitt með að ná endum saman og lífskjör þeirra séu bara mjög slæm. Hér sjáum við líka að næstum því helmingurinn af þeim sem þurfa á þjónustu umboðsmanns skuldara að halda eru öryrkjar. Mér finnst það segja okkur mjög sorglega sögu um samfélagið okkar.
Ástæðan fyrir því að ég kom hingað upp er að benda á að það kemur fram hérna, með leyfi forseta, að:
„ÖBÍ fagnar viðbrögðum félags- og vinnumarkaðsráðuneytisins við ábendingum samtakanna“ — og þar er átt við ÖBÍ — „um fatlað fólk í greiðsluvanda. Í greinargerð með lögunum segir að til að bregðast við þeim ábendingum mun embætti umboðsmanns skuldara setja í verklagsreglur sínar að við afgreiðslu og vinnslu umsókna frá fötluðum einstaklingum skuli litið til samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, sérstaklega ákvæða um viðeigandi aðlögun. ÖBÍ telur þetta skref í rétta átt, en minnir á mikilvægi þess að lög og reglur séu skýr. ÖBÍ óskar eftir að löggjafinn kveði fastar að orði og beini þeim tilmælum til umboðsmanns skuldara að embættinu beri að upplýsa fatlað fólk um réttindagæslu fatlaðs fólks og þá aðstoð sem þar býðst við upphaf greiðsluaðlögunar.“
Ástæðan fyrir ég vek athygli á þessu atriði í umsögn ÖBÍ er að þetta er allt of algengt vandamál, að löggjafinn setji ekki skýrt í lög þær mikilvægu skyldur sem samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks setur á herðar aðildarríkja. Við höfum dregið lappirnar allt of lengi líka þegar kemur að því að lögfesta þann samning og það að setja skýr viðmið um rétt til viðeigandi aðlögunar í öll ákvæði sem snúa að þjónustu við borgarana er ótrúlega mikilvægur liður í þessu að mínu viti. Mér finnst það allt of oft gerast að fatlað fólk er einhver afgangsstærð, það er ekki tekið nægilega mikið tillit til þeirra í lagasetningu. Það er ekki gert ráð fyrir þeim og ekki tekið nægilega mikið tillit til þessarar algildu reglu að fatlað fólk eigi að geta verið jafngildir þátttakendur í samfélaginu, að samfélagið eigi að búa til pláss fyrir þau og eigi að aðlaga samfélagið þannig að fötlunin standi ekki í vegi fyrir því, þ.e. að samfélagið láti ekki fötlunina standa í vegi fyrir því að fatlað fólk geti tekið þátt í samfélaginu. Það er því miður allt of sjaldgæft að það sé hugað að þessu og við sjáum þetta víðs vegar. Í réttarkerfinu er þetta mjög algengt, þegar kemur að greiðslulausnum líka, þegar kemur að rafrænni stjórnsýslu, öllum þessum atriðum, hafa lappirnar verið dregnar allt of lengi við að koma málunum í rétt horf. Þar af leiðandi finnst mér mjög mikilvægt að benda á að þetta er allt of algengt vandamál. Það að ráðuneytið beini þeim tilmælum til umboðsmanns að embættinu beri að upplýsa fatlað fólk um réttindagæslu fatlaðs fólks finnst mér ekki nógu langt gengið þannig að til frambúðar verð ég að taka undir tilmælin sem ÖBÍ kemur með, þar sem samtökin óska eftir því að löggjafinn kveði fastar að orði og hafi þetta algerlega skýrt í lögunum.
Síðan þegar kemur að öðrum lögum sem taka gildi við gildistöku frumvarpsins þá bendir ÖBÍ á mikilvægi þess að löggjafarvaldið geri einnig viðeigandi breytingar á lögum um nauðungarsölu. Ég held og vona að velferðarnefnd skoði þetta sérstaklega vegna þess að það þarf einmitt að huga sérstaklega að frumkvæðisskyldu stjórnvalda í samskiptum við fatlað fólk og tryggja að öll úrræði hafi verið reynd til þrautar. Við sáum þetta í máli sem fór töluvert hátt í umræðunni um fatlaðan mann sem missti húsið undan sér fyrir nánast engan pening. Þar af leiðandi er mjög mikilvægt að taka undir þá ábendingu sem ÖBÍ kemur hér með við þetta frumvarp þar sem, með leyfi forseta:
„ÖBÍ leggur til að löggjafarvaldið skerpi á upplýsingarskyldu sýslumanna á þann veg að sýslumanni beri að afla sér upplýsinga um hvort skuldari hafi óskað eftir aðstoð hjá umboðsmanni skuldara strax þegar skuldamál einstaklings berst sýslumannsembættinu. Sýslumaður skal upplýsa og leiðbeina þeim einstaklingum sem ekki hafa óskað eftir aðstoð umboðsmanns skuldara um úrræðið.“
Ég held að ef þetta hefði verið tekið til greina og verið komið til laga áður en þessi atburður átti sér stað þá mögulega hefði verið hægt að koma í veg fyrir þennan leiðindaatburð sem varð varðandi það að einstaklingur missti húsnæði sitt fyrir eiginlega enga fjármuni.
Að þessu sögðu finnst mér líka mikilvægt að benda á það sem þetta frumvarp nær ekki til og það eru opinberar skuldir eins og námslán og annað. Ég held að það sé mjög mikilvægt að hefja þá umræðu hvort skuldir eins og námslán og aðrar opinberar skuldir séu ekki slíkar að það þurfi að vera hægt að taka þær fyrir í svona þjónustu sem umboðsmaður skuldara býður upp á vegna þess að þær geta vafist fyrir fólki alveg jafn mikið og aðrar skuldir. Þess vegna var leitt að sjá að breytingartillaga þess efnis var felld hér í 2. umræðu. Ég hefði viljað sjá þingið sameinast um að það verði að vera hægt að taka utan um allar skuldir einstaklinga en fólk sitji ekki uppi með sumar þeirra og geti ekki fengið aðlögun á þeim bara vegna þess að þær beinast gegn ríkinu. Við erum hér að ræða um alls konar leiðir til að koma til móts við einstaklinga í þessum sal og það ætti alveg að vera hægt að koma til móts við fólk sem er í miklum vandræðum með þetta. Og eins og bent er á eru 45% þeirra sem eru í þjónustu hjá umboðsmanni skuldara örorkulífeyrisþegar. Margir þeirra hafa háskólamenntun sem þeir hafa síðan ekki not fyrir og eru þá að greiða af lánum fyrir menntun sem mun ekki nýtast þeim, líklega um fyrirsjáanlega framtíð. Þá er auðvitað mikið réttlætismál að það sé hægt að semja um slík lán líka. Eins og hv. þm. Björn Leví Gunnarsson benti á fyrr í þessari umræðu þá höfum við lagt fram frumvarp um að heimila að lánasjóður námsmanna geti ákveðið að veita einhvers konar niðurfellingu eða eitthvað slíkt ef ástæða er til að gera það vegna þess að eins og staðan er núna þá hefur hann bara enga heimild til þess. Það er auðvitað bara mjög óeðlilegt að það sé engin heimild til staðar í lögum til að koma í raun til móts við greiðsluvanda einstaklinga sem er kannski bara mjög mikill. Þar af leiðandi verð ég að endurtaka það að mér finnst mjög leitt að breytingartillaga þess efnis að taka þessar skuldir inn hafi ekki verið samþykkt. Sömuleiðis var breytingartillaga frá hv. þm. Guðmundi Inga Kristinssyni um að það sé ekki hægt að bera fólk út af heimilum sínum nema allt hafi verið reynt til hins ýtrasta og að tekið sé tillit til fjölskylduaðstæðna og viðkomandi hafi komist í eitthvert annað húsaskjól. Þetta tel ég að hefði líka verið gríðarlega mikilvægt fyrir þann einstakling sem borinn var út af heimili sínu fyrir ekki svo löngu síðan, hefði það ákvæði verið í gildi.
Þó að þetta frumvarp sé bara algjörlega frábært, við erum að stíga stór skref til að bæta þetta umhverfi, þá eru enn þá ákveðnir agnúar og það er enn þá einhvers konar tregða hjá ríkinu við að sjá sig sem þátttakanda í því að koma til móts við einstaklinga í greiðsluvanda, sem er auðvitað út af fyrir sig ákveðin fyrirstaða í því að við getum tekið heildstætt utan um þennan málaflokk. Því hvet ég bara hv. velferðarnefnd til dáða í þessum málaflokki og vona að hún haldi áfram með þetta mál og að hún hafi samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks alltaf á bak við eyrað og kalli jafnvel ráðherra á teppið og fari að spyrja hvað líði því að lögfesta þennan samning vegna þess að ef mig minnir rétt eru liðin níu ár frá því við fullgiltum hann og það er orðinn ansi langur tími til þess að ganga í það að lögfesta hann. Við erum t.d. með Mannréttindastofnun í algjöru frosti inni í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd. Við vorum á fullu í gestakomum í þeirri nefnd í því máli fyrir áramót en það er ekkert að gerast þar og er ekki búið að vera að gerast í einhverja mánuði. Ég velti fyrir mér hvort það sé einhver kergja á milli stjórnarflokkanna um hvort það komist í gegn en það mál er t.d. gríðarlega mikilvægur liður í því að við lögfestum samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Þar er gerð mjög skýr krafa um að það sé sjálfstæð mannréttindastofnun innan lands sem fylgir eftir ákvæðum samningsins. Við höfum einhvern veginn látið hjá líða í fleiri ár að setja á fót slíka sjálfstæða stofnun og erum þar af leiðandi að koma í veg fyrir að við getum fullgilt þann samning. Mér heyrist núna að það sé aðallega vegna þess að fólk er ósammála um undir hvaða hatti sú stofnun eigi að eiga heima. Það er auðvitað mjög bagalegt að alltaf skuli fatlað fólk vera látið bíða eftir réttlæti og réttarbótum og það oft út af einhverjum bitamun en ekki fjár um hvar stofnun sé nákvæmlega staðsett í stjórnkerfinu. Mér skilst að það séu skiptar skoðanir um hvort þetta eigi að vera stjórnsýslustofnun sem heyri undir stjórnsýsluna eða þá undir Alþingi og vera sjálfstæð stofnun undir Alþingi eins og forsætisráðherra er að leggja til.
Hvort heldur sem er þá held ég að það væri gríðarlega mikilvægt að koma slíkri stofnun á fót sem fyrst og hún gæti þá líka verið þátttakandi í frumvörpum sem þessum. Hún gæti verið aðhaldsaðili gagnvart stjórnvöldum og hún gæti kannski einmitt lagt stjórnvöldum lið við að vera ekki svona dugleg við að gleyma rétti fatlaðs fólks til viðeigandi aðlögunar, ekkert um okkur án okkar og allt þetta sem virðist samt gleymast svo ótrúlega oft, að samráð sé haft við fatlað fólk, að gætt sé sérstaklega að réttindum þess, og ég sé það náttúrlega í mörgum öðrum málaflokkum en þessum að réttindi fólks með fötlun eru ekki nægilega vel tryggð. Þar eru auðvitað lögræðislögin kannski skýrasta dæmið, alveg rosalegt dæmi þar í raun um hvernig fólki með fötlun er beinlínis mismunað með lögum í íslenskri löggjöf. Það er eitthvað sem er búið að benda okkur á frá árinu 1994 af Evrópunefnd um varnir gegn pyntingum án þess að nokkrar breytingar hafi orðið á. Við höfum fengið áminningu um þetta, að breyta þessum lögum vegna þess að þau mismuni beinlínis lagalega fólki með fötlun, á fjögurra ára fresti síðan 1994. Í 30 ár erum við búin að láta hjá líða að afnema lagaákvæði sem beinlínis mismuna fólki með fötlun.
Þetta er kannski svona sýnidæmi um hversu sama löggjafanum virðist vera um réttindi fólks með fötlun, að hann geti látið 30 ár líða og stöðugar áminningar hjá sér fara um að bæta réttindi fatlaðs fólks, að hann geti beðið í níu ár með að lögfesta samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks og að hann sé, í staðinn fyrir að hafa skýrar reglur um hvernig viðeigandi aðlögun verði framfylgt í úrræði sem þessu, að beina því bara svona til umboðsmanns að hafa það í huga að fatlað fólk eigi rétt á viðeigandi aðlögun án þess að skýra það neitt nánar hvað það ætti að fela í sér í þessu samhengi. Þetta er allt á sömu bókina, virðulegi forseti. Þetta virðast allt saman vera einhverjir bakþankar, eftirmálar, ekki eitthvað sem haft er í huga strax frá upphafi. Það sem mér finnst mikilvægt og ætti að vera leiðandi í allri frumvarpsgerð sem snertir réttindi einstaklinga, og auðvitað er mikið um það, er að við byrjum fyrst á að hugsa: Hvernig snertir þetta réttindi einstaklinga, hvaða einstaklinga og hvernig getum við tryggt að þau réttindi verði sem best vernduð? Síðan getum við farið að takast á við það verkefni að setja upp frumvarpið af því að þá byrjum við á réttum enda, virðulegi forseti, og þá erum við með forgangsröðunina á hreinu. Þannig lítur þetta alla vega út fyrir þeirri sem hér stendur.