fjáraukalög 2024.
Herra forseti. Hér erum við að óska eftir því að fella brott a-lið 1. gr. sem felur það í sér að þá er ekki lengur heimild til frekari erlendrar lántöku. Við erum þegar búin að samþykkja í fjárlögum hér í desember 200 milljarða kr. lántöku. Við erum að greiða hér árlega um 117 milljarða kr. í vexti. Við í Flokki fólksins ásamt vonandi fleirum og sennilega bara öllum, held ég, af því að það eru allir svo glaðir og kominn svefngalsi í alla hér í kvöld, við hljótum öll að sjá að þetta er alveg afskaplega skynsamleg breytingartillaga. Mér sýnist þið bara öll, miðað við að ég sé litblind, ætla að vera með á þessu.