samkeppniseftirlit á Íslandi og innleiðing skaðabótatilskipunar ESB .
Herra forseti. Það hefur verið metið sem svo af hálfu þeirra sem hafa fjallað um þetta í stjórnkerfinu að það skipti máli að hér gildi sömu starfsskilyrði og annars staðar á EES-svæðinu og að tjónþolar samkeppnislagabrota á Íslandi, sem geta auðvitað bæði verið neytendur og fyrirtæki, starfi við sömu starfsskilyrði og annars staðar á EES-svæðinu. Því hefur það verið metið svo að það sé rétt að innleiðing tilskipunarinnar eigi sér stað að loknu eða að undangengnu formlegu ferli í samræmi við ákvæði EES-samningsins. Hins vegar liggur algerlega fyrir að þegar því er lokið stendur til að innleiða hana í íslenskan rétt þannig að það hefur verið gefið skýrt út.
Hvað varðar fjármögnun Samkeppniseftirlitsins þá er þetta auðvitað sjálfstæð stofnun og hluti af því er að fjármögnun hennar hefur lotið þá í raun og veru sérstökum reglum. En það skiptir auðvitað máli að við séum sívakandi gagnvart þessu því eins og ég sagði áðan, þetta er lítið land sem við búum í, hér eru oft örfá fyrirtæki eins og í þessu tilfelli á sama sviði og það er alvarlegt. (Forseti hringir.) Það þýðir að við þurfum að vera jafnvel meira á tánum en stærri ríki til að tryggja öfluga samkeppni í landinu.