umræðan um opin landamæri.
Hæstv. forseti. Ég vil ítreka þá skoðun mína að ég tel að það hafi verið mjög jákvætt skref fyrir umræðuna í þessum málaflokki að ríkisstjórnin kom fram með aðgerðir sem hún hefur sammælst um, því að öll vitum við að við höfum ekki alltaf verið sammála í öllu því sem snýr að útlendinga- og innflytjendamálum. Þess vegna er gott að við erum með ábyrg stjórnvöld sem koma fram með sameiginlega sýn og aðgerðir til að fylgja henni eftir. Ég held að það muni skila okkur árangri í þessum málaflokki, betra samfélagi og sáttari almenningi.