efling náms og samræming einkunnagjafar í grunnskóla .
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svörin. Fleiri munu fylgja. Stytting framhaldsskólanáms kann að hafa sparað ríkinu fjármuni eins og að var stefnt en virðist skila frá sér nemendum sem líður verr, eru með lakari undirbúning, eru líklegri til að lenda í ógöngum í háskólanámi og gengur að jafnaði verr samkvæmt nýjum rannsóknum á áhrifum breytinga á framhaldsskólastigið. Þörf er á því að taka öll skólastig sameiginlega til gagngerrar endurskoðunar með heildstæðum hætti þar sem tryggt verði að nemendum sé fylgt eftir og þeir studdir á milli skólastiga og skapað meira svigrúm til félagslífs, skólanámskrár samræmdar og endurskoðaðar og meira lagt í félagslegan stuðning fyrir þau sem þurfa vegna breyttra aðstæðna í námi. Það er full ástæða til að fara yfir það í fullri alvöru hvort endurskoða beri styttingu framhaldsskólans og í öllu falli grípa til margháttaðra aðgerða til að styrkja skólastarf, ekki síst á framhaldsskólastigi. Þessi óundirbúna tilraun tókst illa. Það þarf að gera betur. Hér er verk að vinna.