154. löggjafarþing — 79. fundur,  4. mars 2024.

tilhögun þingfundar.

[15:45]
Horfa

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (P):

Forseti. Ég leyfi mér að giska, alveg út í bláinn, að ástæðan fyrir því að verið er að fara fram á lengdan þingfund sé til þess að ræða frumvarp dómsmálaráðherra um breytingu á lögum um útlendinga. Ég vildi bara koma hingað upp og fagna því að meiri hlutinn hér á þingi hafi slíkan áhuga á samtalinu um þessi mál að hann sjái ástæðu til að lengja þingfund. Nú er umræðutíminn takmarkaður í 1. umræðu þannig að ég geri fastlega ráð fyrir því að þingmenn meiri hlutans ætli sér að taka þátt í þessari umræðu og ég er bara mjög spennt. Ég hlakka til að spjalla við ykkur. (Gripið fram í: Sömuleiðis.)