útlendingar.
Forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Ég skildi þó ekki alveg hvernig það á að styðja við markmið ríkisstjórnarinnar um inngildingu að stytta gildistíma dvalarleyfa og vil árétta að gildistími dvalarleyfa af þessu tagi er ekki samræmdur á Norðurlöndunum. Sú átylla að verið sé að samræma það við hin Norðurlöndin stenst því ekki heldur.
En mig langar að ítreka spurningu mína til hæstv. ráðherra, sem er: Hver er tilgangurinn með þessu ákvæði? Er þetta talin góð regla? Erum við bara að taka þetta upp af því að önnur Norðurlönd eru að gera þetta eða erum við að gera það vegna þess að það hefur gefist vel á hinum Norðurlöndunum og er góð hugmynd?
Hin spurningin sem mig langar til að beina til hæstv. ráðherra varðar fyrirhugað afnám 2. mgr. 36. gr. laganna. Tillagan virðist byggð á þeim misskilningi sem kom fram í máli hæstv. ráðherra að um íslenskar sérreglur sé að ræða sem hafi einhvers konar aðdráttarafl. Staðreyndin er hins vegar sú að meðferð mála fólks sem fengið hefur vernd í öðrum ríkjum er áþekk í allri Evrópu þó að númer og orðalag í lögum sé eitthvað ólíkt. Það skiptir ekki máli. Alls staðar í Evrópu kemur til greina að taka til efnismeðferðar umsóknir fólks sem hefur fengið vernd annars staðar.
Spurningin er: Hvernig á það að bæta skilvirkni að fjarlægja reglu (Forseti hringir.) sem hafði þann tilgang þegar hún var sett að stytta málsmeðferðartíma með því að gera það að verkum að ef stjórnvöld hafa dregið lappirnar í 12 mánuði eða meira, (Forseti hringir.) ekki ef viðkomandi hefur tafið málið sjálfur, þá fari það til efnismeðferðar? Hvernig á þetta að bæta skilvirkni í málaflokknum?
(Forseti (OH): Enn vill forseti minna þingmenn á að virða ræðutímann.)