154. löggjafarþing — 79. fundur,  4. mars 2024.

útlendingar.

722. mál
[16:28]
Horfa

dómsmálaráðherra (Guðrún Hafsteinsdóttir) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þessar vangaveltur sínar sem ég tel algjörlega rangar, ekki réttar. Það er ekki rétt sem hér er farið með. Þegar við tölum um að samræma hér dvalarleyfistíma við Norðurlöndin þá erum við að því. (Gripið fram í.) Það er eingöngu Finnland sem er með öðruvísi tíma og þeir hafa gefið það út að þeir séu að fara að breyta sínum dvalarleyfistíma til samræmis við hin Norðurlöndin, sem eru þá Noregur, Svíþjóð og Danmörk. Ég mun ekki þreytast á að segja það og ég mun örugglega segja það oft hér í umræðunni í dag að við ætlum að samræma löggjöf okkar við það sem er á hinum Norðurlöndunum.

Þegar hv. þingmaður talar síðan hér um 2. mgr. 36. gr. laga þá er ekkert annað norrænna ríkja með sambærilega reglu (Forseti hringir.) og við sem gerir stjórnvöldum skylt að kanna sérstakar ástæður og sérstök tengsl í málum þeirra sem (Forseti hringir.) hlotið hafa vernd í öðru ríki.