154. löggjafarþing — 79. fundur,  4. mars 2024.

útlendingar.

722. mál
[16:32]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Það er rétt hjá hæstv. dómsmálaráðherra að það er ýmislegt sem laðar umsækjendur um alþjóðlega vernd til Íslands frekar en annarra landa. Hæstv. dómsmálaráðherra talaði mikið um að við þyrftum að samræma reglur við það sem gerist í löggjöf í öðrum Evrópuríkjum og sérstaklega á Norðurlöndum. Það sem er hér undir er það að hin Norðurlöndin, Danmörk, Svíþjóð og Noregur hafa öll tekið upp innra eftirliti á sínum landamærum samkvæmt Schengen og þau hafa öll framlengt það til 11. maí næstkomandi og munu gera það líklega áfram. Dómur hefur fallið í Evrópusambandinu um að þetta sé ekki rétt aðferðafræði en ekkert þessara ríkja hefur hlustað á dóminn, ekki eitt. Frakkar eru líka með eftirlit á innri landamærum, Þýskaland líka, Slóvenía líka, Ítalía, Pólland og Tékkland. Það er því ekkert alveg út í hött þegar talað er um að taka upp innra eftirliti á landamærum.

Spurningin til hæstv. ráðherra er þessi: Ætlar hann að beita sér fyrir því að taka upp innra eftirliti á landamærum Schengen líkt og hin Skandinavíuríkin? Það er í samræmi við það sem öll önnur Skandinavíuríki eru að gera. Ef ráðherrann er heill í þeirri skoðun sinni (Forseti hringir.) að við eigum að hafa þetta eins og á Norðurlöndunum þá get ég ekki séð að það sé önnur leið (Forseti hringir.) til að minnka gríðarlega straum umsækjenda sem er núna kominn. Það er búið að markaðssetja Ísland síðustu sjö ár sem fyrirheitna landið í umsóknum.