útlendingar.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Það er athyglisvert að hv. þingmaður nefni hér að 36. gr. sé í boði Sjálfstæðisflokksins. Ég ætla að fá að minna þingheim á að það hefur líka verið í boði Sjálfstæðisflokksins að fella niður þessa málsgrein og það er í boði hér í fimmta sinn. Í fimmta sinn er hér ráðherra Sjálfstæðisflokksins að leggja til að 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er varðar sérstök tengsl og sérstakar ástæður falli niður. Það er ekki við Sjálfstæðisflokkinn að sakast í þeim efnum. Ég ætla að ítreka það aftur sem ég hef sagt hér í dag að þetta er séríslensk málsmeðferðarregla, hún finnst ekki á öðrum Norðurlöndum. Eftir sem áður eru umsóknir hér metnar með einstaklingsbundnum hætti.