154. löggjafarþing — 79. fundur,  4. mars 2024.

útlendingar.

722. mál
[16:38]
Horfa

Dagbjört Hákonardóttir (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svarið. Ég ætla að taka það fram að seinagangur í íslenskri stjórnsýslu á þessu sviði, sem hefur verið á ábyrgð Sjálfstæðisflokksins svo lengi sem menn muna, er aldrei á öðrum heldur en Sjálfstæðisflokknum og þessari ríkisstjórn. Við tökum þetta ekki til okkar. Þessar breytingar munu að öðru óbreyttu þýða að nú hafa stjórnvöld gott sem endalausan tíma áfram til þess að taka ákvörðun um umsóknir sem berast hingað frá sama hópi sem fellur undir 2. mgr. 36. gr. Þetta mat verður vissulega að taka mið af raunverulegum aðstæðum fólks og það þýðir líka að ákvæði reglugerðar nr. 540/2017, sem lúta að 2. mgr. 36. gr., munu sömuleiðis falla út. Ég viðurkenni að ég hef áhyggjur af því að hæstv. ráðherra ofmeti mögulega það hagræði sem felst í því að fjarlægja þetta ákvæði ef heildarsýnin liggur ekki fyrir gagnvart 42. gr. um „non-refoulement“. Ráðherra verður að gera sér grein fyrir því hvað felst í henni og hvað 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu felur í sér um einstaklingsbundið mat og pósitífa skyldu ríkisins til að leggja mat á aðstæður í hverju ríki (Forseti hringir.) og líka aðstæður þeirra sem sækja um. Þetta þarf að liggja fyrir. Og ef það gerist ekki þá erum við (Forseti hringir.) á vondum stað.