útlendingar.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Það stendur ekki til að gera breytingar á útlendingalögum umfram þessar á þessu þingi. Hins vegar, eins og ég hef nefnt hér í dag, er þetta málaflokkur sem er síkvikur og það er nauðsynlegt að við séum með þessi lög í sífelldri endurskoðun til að geta brugðist við breyttri heimsmynd, breyttum aðstæðum í heiminum. Ég er með áform um að leggja fram breytingar við útlendingalögin næsta haust. Það varðar þessa heildarnálgun sem ríkisstjórnin hefur sammælst um og ég geri ráð fyrir því að leggja fram breytingar á útlendingalögum á næsta þingi.