útlendingar.
Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Ég hjó eftir því sem kom fram í ræðu hv. þingmanns þar sem hann talar um að regluverkið megi ekki vera þannig að fólk líti til Íslands frekar en til annarra ríkja. Spurningin sem mig langar til að beina til hv. þingmanns, ég ætla bara að byrja á henni svo að hún lendi ekki í bjöllunni: Hvernig vill hv. þingmaður stilla því upp? Nú er regluverk fyrst og fremst í ákveðnum grundvallaratriðum áþekkt í allri Evrópu, Ísland þar með talið. Hins vegar eru hinir og þessir núansar á bæði reglum og framkvæmd á meðal ríkjanna innbyrðis, þar á meðal Norðurlandanna innbyrðis sömuleiðis. Þetta er vafalaust einn þáttur sem hefur áhrif á það hvert fólk leitar og er samsetning fólks sem leitar til mismunandi landa mjög ólík eftir löndum. Það er svolítið hipsum haps og sker Ísland sig ekkert meira úr þar heldur en önnur lönd. Spurningin er: Hversu langt finnst hv. þingmanni að íslensk stjórnvöld eigi að ganga í kapphlaupinu á botninn til þess að fæla fólk frá því að leita til Íslands?