útlendingar.
Virðulegi forseti. Þetta er góð spurning og hér held ég að við séum svolítið komin að kjarna máls. Í stuttu máli sagt myndi ég a.m.k. ekki standa hér og hvetja til þess að Ísland skipi sér í fremstu röð í einhvers konar kapphlaupi að botninum. Hins vegar er þetta bara sá veruleiki sem við búum við og það er margstaðfest í rannsóknum að það er ákveðin fylgni milli þess hversu opið kerfið er, hversu sveigjanlegt og opið regluverkið er og hversu margir leita á hvern stað. Þannig er það bara. Og við sem fámennt velferðarþjóðfélag verðum að taka mið af þessu þegar við setjum lögin og setjum reglurnar. Núansarnir sem hv. þingmaður nefndi hérna áðan skipta máli. Það skiptir máli t.d. hvort Ísland tekur upp á því, eitt Evrópuríkja, að veita öllum frá Venesúela viðbótarvernd. Það skiptir máli. Ríki hafa brennt sig á því að framkvæma hlutina með allt öðrum hætti heldur en nágrannaþjóðir. (Forseti hringir.) Án þess að ég sé með einhverja skýra kríteríu um það nákvæmlega (Forseti hringir.) hvar Ísland á að staðsetja sig í þessum efnum þá held ég að þetta sé grundvallarsjónarmið sem verði að líta til þegar við sníðum til þessar reglur.