154. löggjafarþing — 79. fundur,  4. mars 2024.

útlendingar.

722. mál
[17:11]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég var reyndar ekki að tala um alþjóðlega vernd hérna yfir höfuð heldur um viðbótarvernd og þetta er nú eitthvað sem dómsmálaráðuneytið hefur sérstaklega tekið saman í svari við fyrirspurn hv. þingmanns, að Ísland sé eina ríkið í Evrópu sem veitti ríkisborgurum frá Venesúela viðbótarvernd algerlega skilyrðislaust og án þess að kanna einstaklingsbundnar aðstæður hvers og eins.

Varðandi tilhæfulausar umsóknir þá geta auðvitað verið dæmi um fólk sem þarf sárlega á hjálp að halda en hefur hins vegar fengið vernd annars staðar, er frá öruggu upprunaríki, er e.t.v. fremur að flýja efnahagslegar aðstæður heldur en að flýja ofsóknir og heyrir þannig ekki undir hina þröngu skilgreiningu flóttamannasamningsins á flóttamanni. Þannig að já, ég held að við gætum alveg leikið þann leik að telja upp einstaklinga sem eru í mjög viðkvæmri stöðu (Forseti hringir.) sem engu að síður eiga ekki rétt á alþjóðlegri vernd á Íslandi.