154. löggjafarþing — 79. fundur,  4. mars 2024.

útlendingar.

722. mál
[17:12]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Jóhanni Páli Jóhannssyni fyrir ræðuna og vil óska Samfylkingunni og hv. þingmanni til hamingju með stefnubreytinguna sem kemur hér í gegn. Ég sat hér í salnum og hugsaði bara, sérstaklega framan af ræðu hv. þingmanns, að ég hefði getað verið að flytja hana fyrir ekki löngu síðan. Það þykir mér alveg frábært, að við séum að komast á þann stað að við séum öll innst inni Miðflokksmenn í þessu máli. Það er lykilatriði að við náum að taka þessa umræðu hér í þingsal þannig að gagn verði af. Framlagning dómsmálaráðherra hvers tíma hefur mistekist hrapallega undanfarin fimm skipti þar sem mál sem ætluð eru til bóta hafa siglt í strand eða verið þynnt þannig út að ekkert gagn er af. En hv. þingmaður sagði hér í ræðunni, „ekki algerlega úr takti við það sem tíðkast í löndunum í kringum okkur“ og þá í því samhengi að reglurnar hér á Íslandi mættu ekki vera það, til að seglarnir væru ekki of sterkir til að ýta undir flæði umsókna hingað. (Forseti hringir.) Mig langar til að spyrja hv. þingmann hvort hans afstaða sé sú (Forseti hringir.) að í einhverju tilliti væri skynsamlegt eða sanngjarnt að vera með opnara kerfi heldur en í nágrannalöndunum.