útlendingar.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið og skil honum eftir seinna svar sitt til að svara spurningunni sem sneri að því hvort hv. þingmaður teldi í núverandi regluverki einhvers staðar ástæðu til að hafa kerfið opnara heldur en hjá nágrannaþjóðum okkar. Ég nefnilega held að sú áhugaverða staða sé að teiknast upp hér í þinginu að við raunverulega getum náð árangri í þessu máli. Mér sýnist á öllu að stór hópur þingmanna og þingflokka sé á þeim stað í dag að gagn geti orðið að. Þess vegna fagna ég mjög þessari stefnubreytingu Samfylkingarinnar. En ég ítreka þessa spurningu: Er á einhverjum sviðum útlendingalöggjafarinnar þar sem hv. þingmaður telur ástæðu til að hafa kerfið opnara heldur en hjá nágrannaþjóðunum?