útlendingar.
Virðulegur forseti. Þetta er skemmtileg spurning en það er dálítið erfitt að svara henni vegna þess að Norðurlöndin eru t.d. ekki með samræmda stefnu í hælisleitendamálum. (Gripið fram í: Einmitt.) Það eru ýmsar meginlínur en engu að síður eru kerfin frekar ólík. Hér í dag höfum við t.d. talað talsvert um þessa 2. mgr. 36. gr. og það er látið eins og það sé alger nýlunda á Íslandi. Norðmenn eru með reglu sem er ekkert svo ólík, hún tilgreinir sérstaklega sérstök tengsl og tekur til Dyflinnarmála en ekki til verndarmála.
Hvað varðar Norðurlöndin og nágrannalöndin þá held ég að við eigum heldur ekki að fylgja þeim í algjörri blindni. Ég las t.d. frétt um daginn á sænskum miðli, ég held að það hafi verið stúlka frá Albaníu sem hafði búið í Svíþjóð í fimm eða sex ár hjá fósturforeldrum en það átti að fara að vísa henni á eitthvert heimili í Albaníu, vísa henni úr landi eftir að hafa búið í fimm, sex ár í Svíþjóð. Þannig að ég held að (Forseti hringir.) Svíar hafi nú aldeilis brennt sig á því að standa ekki vel að inngildingu og slíku. Ég held að við eigum líka að passa okkur að stökkva ekki á einhverja vagna í algjörri blindni heldur reyna þá (Forseti hringir.) einmitt að byggja á því sem hefur gefist best í hverju ríki fyrir sig.