154. löggjafarþing — 79. fundur,  4. mars 2024.

útlendingar.

722. mál
[18:18]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég tek svo sannarlega undir það. Ég man að eitt af lykilorðum mínum í umræðunni hér í fyrra var einmitt þetta, þetta snýst um mannúð en líka raunsæi. Ég er bara glöð ef fleiri í þessum sal eru komnir með mér á þann vagn að við þurfum líka að horfa á þetta út frá raunsæi. Hv. þingmaður sagði einmitt þessi orð hérna áðan, bæði mannúð og raunsæi, og að við þyrftum að hafa bolmagn, fjárhagslegt og samfélagslegt, til að takast á við þetta verkefni. Ég fagna því vel og ég hlakka til að vinna með hv. allsherjar- og menntamálanefnd að þessu máli og vænti þess að það sé aðeins breytt hljóð frá því sem var fyrir bara fyrir ári síðan. Hv. þingmaður segir að þetta mál sé svolítið lítið en síðast vorum við hér, bara fyrir einu ári síðan, með frumvarp þar sem voru gerðar töluverðar breytingar en þó ekki allar þær sem lagðar eru hér til og þá lagðist þingflokkur Viðreisnar alfarið gegn því frumvarpi, gegn því að það yrði samþykkt. Þannig að ég segi bara: Takk fyrir að vera búin að skipta um skoðun. Ég er svo sannarlega til í að taka þetta samtal af raunsæi og mannúð í hv. allsherjar- og menntamálanefnd og ég fagna því hvernig andrúmsloftið virðist vera breytt núna í þessum sal gagnvart þessu ofboðslega mikilvæga máli.