154. löggjafarþing — 79. fundur,  4. mars 2024.

útlendingar.

722. mál
[18:54]
Horfa

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (P) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna þó að hún hafi innifalið fleiri rangfærslur en svo að mér dugi tvær mínútur til að leiðrétta þær. Mig langaði bara að skjóta einni spurningu að hv. þingmanni. Nú hefur hv. þingmaður miklar áhyggjur af þeim fjölda sem hingað leitar. Þorri þeirra umsókna sem Ísland þarf að vinna er frá einstaklingum frá Úkraínu og Venesúela og hefur verið síðustu tvö árin sem talsmönnum þessa frumvarps er tíðrætt um tölurnar í tengslum við. Af því tilefni langar mig til að spyrja hv. þingmann hvort hann telji að eitthvað í þessu frumvarpi hafi einhver áhrif á þessa tvo hópa, umsækjendur frá Úkraínu og umsækjendum frá Venesúela. Ég læt þar við sitja.