útlendingar.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni. Ég held að það sé bara mjög mikilvægt að átta sig á því að það eru ákvæði í núverandi lögum sem gera það að verkum að það er fólk sem sækir hér um sem hefur þegar fengið vernd í öðru landi og þeirra umsóknir eru teknar til efnislegrar meðferðar eins og við þekkjum varðandi 2. mgr. 36. gr. Ég veit t.d. að það er ákveðinn þjóðfélagshópur sem hefur sótt hér um vernd þar sem u.þ.b. helmingur þeirra umsækjenda kemur inn á 2. mgr. 36. gr.
Hv. þingmaður spyr sérstaklega um Venesúela í þessu samhengi (ArnG: Og Úkraínu.) — og Úkraínu. Úkraína fær sérstakan forgang hér vegna stríðsins í Úkraínu og við höfum öll sammælst um að reyna að taka sem best á móti Úkraínufólki. Ég er hins vegar sannfærður um það að þegar stríðinu lýkur, sem verður vonandi sem fyrst þó að maður sé kannski svartsýnn á það, þá muni þeir flestallir snúa aftur til síns heima. Varðandi Venesúela þá eru þeir að koma hingað vegna þess að kærunefndin fer þá leið að veita hér skilyrðislausa vernd. Reyndar er það nú þannig, og hv. þingmaður þekki það kannski, að það er Útlendingastofnun sem byrjar á því að veita þessa vernd, viðbótarvernd. Þetta byrjaði um 2018 og viðgekkst í u.þ.b. þrjú ár og þá jókst fjöldinn. Svo var farið að auglýsa Ísland í Venesúela og við horfðum fram á að sjá þennan fordæmalausa hóp af fólki koma hingað til lands og sækja um vernd frá Venesúela þegar aðrar þjóðir höfðu margfalt færri einstaklinga sem sóttu þar um. Þannig að ég held bara að það sé nauðsynlegt að menn átti sig á því að þarna er kærunefndin (Forseti hringir.) að taka einhverjar ákvarðanir sem stjórnvöld hafa engin áhrif á og að því leyti til er ekki hægt að segja að (Forseti hringir.) frumvarpið hafi áhrif á það.
En frumvarpið lýtur líka að því að fækka í kærunefndinni og (Forseti hringir.) lýtur beint að kærunefndinni sjálfri, en sú fækkun á fyrst og fremst (Forseti hringir.) að snúa að því að gera þetta skilvirkara vegna þess að þá er þetta fullt starf hjá þeim þremur nefndarmönnum (Forseti hringir.) sem eiga að vera í nefndinni.
(Forseti (ÁLÞ): Forseti vill minna þingmenn á að virða ræðutímann.)