154. löggjafarþing — 79. fundur,  4. mars 2024.

útlendingar.

722. mál
[19:05]
Horfa

Þórunn Sveinbjarnardóttir (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Mér kann að hafa misheyrst en hæstv. dómsmálaráðherra var í ræðustóli fyrr í dag og tók þá skýrt fram, aðspurð, að þingflokkarnir þrír sem styðja núverandi ríkisstjórn hefðu afgreitt það frumvarp sem hér er til umræðu og hvergi kom fram í máli hennar að þar hefði einhver fyrirvari verið gerður af neinum af þessum þingflokkum. Ég ætla því að fá að nota þetta tækifæri og koma hér upp og biðja hv. þm. Orra Pál Jóhannsson, bara svo að ég skilji þetta alveg, til að lesa fyrirvarann fyrir okkur aftur þannig að við getum fengið að heyra hver fyrirvari þingflokks Vinstri grænna er við það frumvarp sem hér er til umræðu, af því að það hefði farið betur á því ef þetta hefði verið upplýst við upphaf umræðunnar í dag, sannleikanum samkvæmt, og við hefðum vitað á hvaða forsendum þetta tiltekna frumvarp var afgreitt út úr þeim þremur þingflokkum sem mynda þessa ríkisstjórn og styðja ráðherrana til valda sem í henni eru.