154. löggjafarþing — 79. fundur,  4. mars 2024.

útlendingar.

722. mál
[19:06]
Horfa

Orri Páll Jóhannsson (Vg) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Þórunni Sveinbjarnardóttur fyrir andsvarið. Vil þó segja að það er vissulega okkar í þingflokki Vinstri grænna að greina frá því ef við höfum fyrirvara við mál þannig að ég geri ekki athugasemdir við einhver svör hæstv. dómsmálaráðherra frá því fyrr í dag og því er ég hér að gera grein fyrir fyrirvaranum. Ég get lesið hann allan upp aftur ef hv. þingmaður vill það en það var svona stofninn í minni framsögu — ég er bara ekki viss um að mér endist tíminn til þess en ég get þó byrjað á því og annars getum við leitað í þingtíðindin. Til þess er jú leikurinn gerður að vera með hlutina skráða, svo það sé ljóst hver afstaða okkar er. Ég vil þó taka fram að vissulega afgreiðum við málið með fyrirvara, það gerum við auðvitað með einhver mál og ég hef staðið hér áður og gert grein fyrir þeim þegar það á við, en engu að síður að málið fari til þinglegrar meðferðar. Eins og ég tók fram í mínu máli er þetta frumvarp nú auðvitað bara liður í breiðri heildarsýn í málefnunum, þótt sannarlega stöndum við akkúrat hér að ræða þetta tiltekna frumvarp þar sem er verið að leggja m.a. upp með það að færa hlutina nær því sem gengur og gerist í norrænu samhengi. Þar óskuðum við, eins og ég tók fram í minni ræðu áðan, eftir gögnum því tengdu og óskum jafnframt eftir því í fyrirvaranum að þau þá komi fram við þinglega meðferð málsins, vegna þess að Norðurlönd eru ekki það sama og Norðurlönd og það vitum við og höfum farið yfir það í þessu samhengi í þessum sal í dag. Ég sé ekkert því til fyrirstöðu að það verði farið gaumgæfilega yfir það í meðförum hv. allsherjar- og menntamálanefndar þegar að því kemur. Annars dró ég líka upp í samhenginu að eitt af því sem við þurfum að gera og hefur komið fram í máli hæstv. félags- og vinnumarkaðsráðherra er að horfa til vinnu við inngildingu sem er í gangi og sem tekur m.a. mið af því sem gengur og gerist á Norðurlöndunum.