útlendingar.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni enn og aftur andsvarið. Það kann vel að vera að það hefði farið betur á því að þetta hefði komið fyrr fram í umræðunni hér í dag. Ég verð reyndar að segja eins og er að ég atti miklu kappi hér við aðra þingmenn sem kepptust við að reyna að komast á mælendaskrá og ég bara dró stutt strá og komst ekki fyrr að, því miður, hv. þingmaður. En ég hef svo sem ekkert áhyggjur af því. Við eigum eftir að fara með þetta í gegnum þinglega meðferð og erum bara hér í 1. umræðu. Ef það er einhver sameiginlegur tónn í þeim vangaveltum og áhyggjum sem við höfðum uppi og birtum í okkar fyrirvara í þingflokki Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs sem eru sammerkt með athugasemdum annarra hér — ég verð reyndar að fá að segja það, virðulegur forseti, að mér hefur fundist þessi umræða gagnleg og ágæt. Og af því að ég kom sérstaklega inn á það í minni framsögu að ég teldi það vera verkefni okkar allra að vinna gegn skautun í íslensku samfélagi — sum hér telja vera merki um skautun, önnur telja ekki svo vera og ég tel mig nú frekar tilheyra fyrra liðinu í þessu og hef miklar áhyggjur af því — þá skynja ég ekkert annað í þessum þingsal en að það sé ríkur vilji til að leggjast á eitt við að sporna við vondri þróun í þeim efnum. Ég hef sagt það áður og segi það enn: Ég fagnaði frumkvæði formanns Viðreisnar, hv. þm. Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, að falast eftir því við hæstv. forsætisráðherra, sem fól svo aftur hæstv. dómsmála- og félags- og vinnumarkaðsráðherra það, að leiða vinnu um svona þverpólitískan hóp þingmanna í þessum málaflokki. En ég ætla þó líka að nota tækifærið hér og segja að ég sakna fulltrúa í þeim hópi sem tilheyrðu flokkum sem hafa hér komið og tekið til máls og þætti vænt um að sjá fulltrúa þeirra á þeim vettvangi vegna þess að ég er bara hjartanlega sammála því sem fram kom í máli formanns Viðreisnar hér áðan um að það væri brýnt að vinna gegn þessu með öllum hætti. Ég tek glaður (Forseti hringir.) þátt í þeirri vinnu og finn að fleiri hv. þingmenn hafa áhuga á því hér inni og það er vel.