154. löggjafarþing — 79. fundur,  4. mars 2024.

útlendingar.

722. mál
[19:13]
Horfa

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (P) (andsvar):

Forseti. Ég vil byrja á að taka undir með nokkrum þingmönnum sem spurðu sig hér í salnum undir ræðu hv. þingmanns hvort hann væri að ræða sama málið og við. Mig langar til að spyrja hv. þingmann aðeins út í fyrirvarann sem að hans sögn hefur verið gerður af hálfu þingflokks Vinstri grænna þar sem kemur fram að þau vilji láta afla upplýsinga um það hvort það að stytta gildistíma dvalarleyfa muni raunverulega stuðla að skilvirkni í kerfinu. Það að stytta gildistíma dvalarleyfa eykur augljóslega álag á Útlendingastofnun þar sem styttri tími líður þar til fólk þarf að sækja um endurnýjun umsóknar sinnar. Með því að helminga gildistíma dvalarleyfis má gera ráð fyrir að fjöldi umsókna um endurnýjun tvöfaldist u.þ.b. Hvernig í ósköpunum ætti stytting gildistíma að auka skilvirkni? Þetta er fyrsta spurning mín til hv. þingmanns.

Þá segir hv. þingmaður: Við getum og verðum að stuðla að inngildingu. Mig langar til að spyrja hv. þingmann hvort það sé eitthvað í þessu frumvarpi sem hann telur að stuðli að inngildingu flóttafólks hér á landi, hvort það sé skerðing réttar til fjölskyldusameiningar við sína nánustu. Tek það fram að fjölskyldusameining einskorðast við maka, börn undir 18 ára og foreldra yfir 67. Það er ekki eins og það sé verið að tala um frændur og frænkur og ekki einu sinni systkini. Hvernig á þetta að stuðla að inngildingu? Það er mín spurning.

Svo langar mig að spyrja hv. þingmann um það sem hann talaði um, að færa hlutina nær því sem gengur og gerist á Norðurlöndunum, en er þó meðvitaður um það að hlutirnir eru bara alls ekkert eins á öllum Norðurlöndunum og mjög ólíkir um margt. Þessi frasi er hins vegar notaður gjarnan af samstarfsflokki hv. þingmanns til að réttlæta það að velja lægsta samnefnarann sem í boði er. Þá vil ég beina þriðju spurningunni til þingmannsins.(OPJ: Fjórðu.) Fjórðu, hv. þingmaður fylgist vel með, betur en ég. Hversu langt finnst hv. þingmanni að við eigum að ganga í kapphlaupinu á botninn?