154. löggjafarþing — 79. fundur,  4. mars 2024.

útlendingar.

722. mál
[19:18]
Horfa

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (P) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þingmanni sérstaklega fyrir lokaorðin í svari sínu þar sem þau renna beint að næstu spurningu minni. Nú stóð til með því frumvarpi sem þingflokkur Vinstri grænna hleypti hérna í gegnum þingið síðasta vor sem skerti réttindi fólks á flótta gríðarlega og olli miklu uppnámi í okkar kerfi með því að setja fólk í gríðarlega viðkvæmri stöðu á götuna. Allt þetta studdi þingflokkur Vinstri grænna. Hins vegar kom fram í máli þingmanna Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs þegar þau voru gagnrýnd fyrir að hafa hleypt þessu í gegn að þau hefðu gert ýmsar breytingar á þessu máli til hins betra. Var sérstaklega vísað til breytinga sem stóð til að gera á 2. mgr. 36. gr. Þær breytingar sem þá stóð til að gera gengu skemur en þær breytingar sem nú á að gera, enda á bara að fella greinina algerlega í burtu. Orðalagið sem hv. þingmenn notuðu var gjarnan að hlutverk Vinstri grænna í þessari ríkisstjórn væri ekki síst að koma í veg fyrir það að slæmir hlutir myndu gerast, ekkert endilega að koma góðum hlutum áfram en koma í veg fyrir slæma hluti. Spurningin sem mig langar til að beina til hv. þingmanns er því: Var það hlutverk Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs í þessu tilviki að koma í veg fyrir að slæmir hlutir gerðust eða einfaldlega að fresta þeim um eitt ár?

Svo langar mig til að spyrja hv. þingmann hvort honum finnist þetta vera góð breyting. Þarna erum við að færa okkur nær botninum þar sem við erum að gera okkar regluverk harðara heldur en gengur og gerist í öðrum Evrópuríkjum. Það er augljóst að samstarfsflokkur hv. þingmanns er mjög metnaðarfullur í kapphlaupinu á botninn með því að miða sig við Danmörku sem er þekkt í Evrópu fyrir að vera bæði með stranga og réttindalitla útlendingalöggjöf og, hvað eigum við að segja, (Forseti hringir.) ekki mjög „welcoming“, afsakið slettuna, viðmót gagnvart flóttafólki.