154. löggjafarþing — 79. fundur,  4. mars 2024.

útlendingar.

722. mál
[19:23]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V) (andsvar):

Frú forseti. Maður finnur sig knúinn til að koma hér upp eftir þessa ágætu ræðu hjá hv. þm. Orra Páli Jóhannssyni sem jafnframt er þingflokksformaður VG sem er, eins og við vitum, einn þriggja stjórnarflokka sem á dögunum boðaði meiri háttar flott samkomulag og sátt í málefnum útlendinga nema hvað að hér var opinberað að einn stjórnarflokkurinn er að gera fyrirvara við nánast allt sem í frumvarpinu er. Það er verið að senda málið til þinglegrar meðferðar en VG er búið að gera stóra og alvarlega fyrirvara við allt það sem þingmenn Sjálfstæðisflokksins hér í þessari umræðu hafa verið að tala um sem langþráða sátt í deilumálinu um hælisleitendur og útlendinga. Núna verður maður að játa að maður er orðinn pínulítið ringlaður. Það eru nokkur atriði í þessu frumvarpi sem við í mínum flokki höfum viljað taka til skoðunar í allsherjar- og menntamálanefnd, átta okkur á því hvort þar geti mögulega eitthvað verið til bóta, hvort eitthvað þar geti mögulega dregið úr kostnaði í kerfinu en jafnframt alltaf haldið því til haga að við viljum standa vörð um mannréttindi þess viðkvæma hóps sem hingað leitar og sækir eftir því að fá hér vernd. Við höfum hafnað umræðu um það að hér séu innviðir í landinu að sligast út af þessum tiltölulega fámenna hópi í heildarsamhenginu.

Núna liggur það fyrir sem sagt að VG styður ekki þetta mál eins og það lítur út núna. Ég get ekki skilið ræðu hv. þingmanns öðruvísi. Mig langar að vita hvort þetta eigi líka við um sérstöku tengslin, hvort þetta eigi líka við um skipan kærunefndarinnar sem er verið að breyta því það er alveg augljóst að það er búið að gera tvo alvarlega fyrirvara við það sem snýr að fjölskyldusameiningu og lengd dvalarleyfa.