útlendingar.
Frú forseti. Já, það er eins og hér hafi aldrei verið farið yfir fyrirvara í þingsal áður, þetta er áhugavert viðbragð. En bara svo að ég taki nú af allan vafa þá laut fyrirvarinn einna helst að því, og það má þá lesa í þingtíðindunum þegar þau verða birt, að það væru ákveðin atriði sem við teldum að þyrfti að skoða betur. Ég nefndi til að mynda sérstaklega að við kölluðum eftir upplýsingum varðandi samanburð við Norðurlöndin við verkan málsins í þingflokknum áður en við afgreiddum það til þinglegrar meðferðar með fyrirvaranum. Ég er hér að endurspegla það sem fram kom í umræðum í þingflokknum, að það væru upplýsingar sem væru gagnlegar fyrir vinnuna í allsherjar- og menntamálanefnd þegar þar að kæmi en þangað kemst ekki málið nema það komist til þinglegrar meðferðar og hér erum við í dag. Þannig að ég myndi ekki túlka þennan fyrirvara alveg út í ystu æsar. Hér höfum við úr öllum stjórnarflokkum gert fyrirvara við ýmis mál en engu að síður komist í gegnum þau. Það er ekki neinn annar hugur í okkur í Vinstri grænum, rétt eins og hefur komið fram í máli fjölmargra annarra þingmanna hér, en að vinna af heilindum að þessu máli áfram í þinglegri meðferð, enda er það gagnlegt þegar við skiptumst á skoðunum um málið eins og við höfum verið að gera hér í þingsal í dag og enn frekar á vettvangi nefndarinnar þegar við fáum inn alls kyns umsagnaraðila sem deila með okkur þeirra sýn og þeirra uppleggi og afstöðu og ekki minnst þá sem undirbjuggu frumvarpið með gagngerum upplýsingum til frekari upplýsingar fyrir nefndina sem er að véla um málið.