útlendingar.
Virðulegi forseti. Við erum flest ásátt um það að Ísland getur ekki eitt og sér leyst áskoranir tengdar málefnum fólks á flótta. Þetta er risastórt alþjóðlegt verkefni sem krefst náinnar samvinnu ríkja á evrópskum og alþjóðlegum vettvangi. Það þýðir þó ekki að við sem velferðarsamfélag viljum skila þar auðu og stíga markvisst skref í átt að því að taka á móti eins fáu flóttafólki og hugsast getur. Að sjálfsögðu eigum við að leggja okkar af mörkum og við viljum gera það áfram.
Það er óhætt að segja að stjórnsýsla Sjálfstæðisflokksins og málsmeðferðin sem hefur verið mótuð frá því að gildandi útlendingalög voru samþykkt 2016 hefur á köflum verið í molum og mér gefst ekki tími til að fara ítarlega yfir það hér í dag. Afgreiðslutími einstakra umsókna um dvalarleyfi hefur hlaupið á mánuðum ef ekki fleiri misserum. Allt þetta hefur leitt af sér mikla óvissu, óróleika og vanlíðan hjá öllum sem eiga í hlut.
Til að byrja með vil ég samt árétta að ég vil sjálf búa í fjölbreyttu samfélagi. Ég vil að börnin mín kynnist heiminum í gegnum nærsamfélag sitt. Ég vil að þau gangi í sína skóla og stundi tómstundir með börnum af öðrum uppruna en þeim sem við foreldrar þeirra höfum, einfaldlega vegna þess að það endurspeglar samfélagið sem þau búa í. Á sama hátt vil ég þekkja foreldra vina þeirra og gera mitt besta til að stuðla að því að búa til þorpið sem þarf til þess að ala upp önnur börn í íslensku nútímasamfélagi. Það er samt út af fyrir sig önnur umræða því að fólk kemur hingað til lands og býr sér til líf á mismunandi forsendum. Yfirgnæfandi meiri hluti þeirra sem teljast til innflytjenda kemur hér til þess að stunda atvinnu, setjast hér að til skemmri eða lengri tíma á grundvelli réttinda sem leiða af EES-samningnum.
Umfjöllunarefnið okkar í dag lýtur að öðrum hópi sem hefur farið vaxandi á undanförnum árum. Það eru umsækjendur um alþjóðlega vernd, umsækjendur um fjölskyldusameiningu og þeir sem kæra ákvarðanir Útlendingastofnunar til kærunefndar útlendingamála. Við í Samfylkingunni höfum frá upphafi talað fyrir mikilvægi þess að skýr stjórn sé á málaflokknum. Fólk kann þá að spyrja sig: Hvað felst í því að hafa stjórn? Í réttlátu lýðræðisþjóðfélagi hlýtur það að felast í því að regluverk og umsóknarstigið sé fyrirsjáanlegt, málshraði og afgreiðslutími sé forsvaranlegur og stjórnvöld séu áreiðanleg í samskiptum sem og í stjórnsýsluháttum almennt. Hægagangur í málsmeðferð dregur úr getu kerfisins. Hann kemur í veg fyrir að þeir umsækjendur sem uppfylla þau skilyrði sem gildandi lög setja fái lausn sinna mála í tæka tíð. Það kemur í veg fyrir að fólk geti tekið þátt í samfélaginu af öllu afli, stundað hér atvinnu og lagt sitt af mörkum til þess. Í framhaldinu er það síðan velferðarkerfisins að taka á móti hópunum sem fá umsóknir sínar samþykktar en það er ekki viðfangsefni okkar hér í dag að tala um það hvernig við ætlum að fara að því. Það er hins vegar lykilatriði að gleyma því ekki að það er ábyrgð velferðarsamfélagsins Íslands sem verður að ráða för um hvert við viljum stefna við mótun reglna sem útlendingalögin fela í sér, ekki síst hvað varðar réttmætar væntingar fólks til að geta sótt hér um skjól í samræmi við landslög og þær alþjóðlegu skyldur sem Ísland hefur undirgengist.
Í nútímalegu velferðarríki sem byggist á gildum jafnaðarmanna finnst okkur það grundvallaratriði að geta veitt fólki á flótta nauðsynlega aðstoð og að réttur þess til að sækja um alþjóðlega vernd sé virtur í hvívetna, og þá er ég að tala um réttinn til að sækja um. Það er í senn forsvaranlegt og æskilegt að mínu mati að löggjöf hérna á Íslandi beri með sér sambærilegt réttarumhverfi og gildir á Norðurlöndunum og fleiri nágrannaríkjum og ekki bara í málefnum útlendingalaga heldur velferðarsamfélagsins í heild sinni því að það verður ekki bara haldið eða sleppt í þessu. Ef maður ætlar að hafa strangar reglur fyrir þá sem koma hingað til lands er eins gott að kerfið sem við búum til sé líka í samræmi við það sem best þekkist á byggðu bóli á þessari jörð.
Það skiptir líka máli hvernig við förum að. Við vitum að það er nokkur munur á útfærslum innan sérhvers ríkis, sem gerir þennan norræna samanburð oft mjög erfiðan, ekki síst þegar við berum saman mismunandi tölfræði. Staðreyndin er hins vegar sú að samhliða aukningu á ófriði við jaðar Evrópu þá eykst þessi óvissa, óvissa um það hvort okkur sé hreinlega fært að sinna verkefninu sem felst í móttöku fólks á flótta með sama hætti og okkur þótti vel gerlegt að gera fyrir örfáum misserum síðan. Það felst ábyrgð í því að staldra við og vega og meta þau markmið sem við ætlum að stefna að og leita réttra leiða til að ná þeim.
Þá komum við að þessum markmiðum, markmiðum þess frumvarps sem er til umræðu hérna í dag. Samkvæmt því sem segir í almennum hluta greinargerðarinnar er lagabreytingunum er ætlað að tryggja mannúðlega og skilvirka meðferð stjórnvalda í málefnum útlendinga hér á landi. Það sé mikilvægt að stjórnvöld geti brugðist við eftir atvikum með laga- og reglugerðarbreytingum. Þetta eru gildishlaðin hugtök, mannúð og skilvirkni. Það er hægt að taka undir þau markmið. Þau koma líka fram í gildandi lögum, vissulega, en að því sögðu verður það verkefni okkar í allsherjar- og menntamálanefnd að ganga úr skugga um hvort þær leiðir sem eru lagðar til séu til þess fallnar að ná settu markmiði.
Um einstakar greinar frumvarpsins þá ber að nefna í fyrsta lagi breytingar sem lúta að skipan kærunefndar útlendingamála. Hér eru lagðar til talsverðar breytingar. Þrír eiga að eiga sæti í nefndinni í stað sjö, auk þess sem gert er ráð fyrir að einum nefndarmanni verði gert heimilt að úrskurða í ákveðnum málaflokkum. Hérna koma til skoðunar almenn sjónarmið um rannsóknarskyldu stjórnvalda, hefðbundin stjórnsýslutækni og nauðsyn þess að samhliða fækkun þessara nefndarmanna verði tryggt að sérþekking þeirra sem hafa fyrr komið að borðinu frá mannréttindasamtökum muni skila sér þegar svo ber undir. Athugum að gangi þessar breytingar eftir þá verður enginn nefndarmaður tilnefndur af mannréttindasamtökum og kærunefndinni er ekki gert sérstaklega heimilt í lögum að kalla til sín sérfróðan aðila, allt í nafni skilvirkni, látum það liggja milli hluta. Við verðum auðvitað að líta til þess sem fram kemur í sérstökum athugasemdum, að það hvíli áfram rík rannsóknarskylda á störfum kærunefndarinnar og henni verði áfram heimilt að kalla til sín sérfróða aðila. Það verður verkefni okkar að ganga úr skugga um að leggja mat á það hvernig það verður gert.
Það má síðan, varðandi getu einstaks nefndarmanns til þess að taka ákvörðun um einstök mál, alveg spyrja sig hversu æskilegt það er að málaflokkur þeirra sem sækja hér um alþjóðlega vernd m.a. sé endilega sá málaflokkur þar sem æskilegt er að fela einum nefndarmanni svo víðtækt vald til ákvarðanatöku eins og hér er lagt til. Allsherjar- og menntamálanefnd mun, eins og ég segi, taka þetta til gaumgæfilegrar athugunar. Það er mikilvægt að verklag að þessu leyti verði hafið yfir allan vafa enda er og verður það meginregla að hér á landi að stjórnvöld séu fjölskipuð.
Þá komum við að annarri veigamikilli breytingu í 5. gr., eins og hefur verið rætt hér í dag og ég kom aðeins inn á áðan í andsvörum við upphafsræðu hæstv. ráðherra. Undanþáguákvæði 2. mgr. 36. gr. laganna er fyrirhugað að fjarlægja í þeirri mynd sem það er núna og þá verður þá lagt til að — eins og ákvæðið er í núgildandi lögum er lögð sú skylda á íslensk stjórnvöld að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar hafi umsækjandi slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæla annars með, annars vegar þegar við erum að tala um fólk sem er búið að fá vernd í öðru ríki eða bíður afgreiðslu umsóknar sinnar þar. Hér er um að ræða mjög matskennt ákvæði. Ég geri mér grein fyrir því. Það á sér kannski ekki eiginlega fyrirmynd eða samhljóm í regluverki ríkja sem eru okkur næst. Það er hins vegar algerlega ljóst að við erum skuldbundin samkvæmt alþjóðlegum mannréttindasáttmálum til að gera allar þær ráðstafanir sem við getum gert með því að koma í veg fyrir að fólk verði beitt hér ómannúðlegri meðferð og ég vísa m.a. til 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Að halda að þessi skylda til að kanna aðstæður í móttökuríki hverfi bara eins og dögg fyrir sólu er mikil einföldun á verkefnum okkar hér sem munum koma til með að taka áfram afstöðu til þeirra sem sækja hér áfram um vernd vegna þess að við erum ekki að fara að taka í burtu möguleika fólks til að koma hingað og óska eftir efnislegri meðferð. Það verður verkefni okkar í nefndinni að kanna það hvernig stjórnvöld sjá fyrir sér að framkvæma þetta mat með brottfalli viðeigandi reglugerðarákvæða samhliða þeim.
Fyrst við höfum komið inn á alþjóðlega mannréttindasáttmála sem Ísland hefur undirgengist hlýt ég næst að víkja að því sem mér þykir síður til þess fallið að teljast réttarbót undir formerkjum mannúðar og skilvirkni. Þá höfum við séð ýmis ríki fara þá leið að setja fjölskyldusameiningu skorður, ýmist með því að leggja á tiltekinn biðtíma og gera kröfur um framfærslugetu umsækjenda. Það þarf ekki að fara mörgum orðum um það hversu mikilvæg fjölskyldutengsl eru þegar kemur að því að tryggja félagslega og efnahagslega aðlögun fólks sem sest hér að sökum þess að það er hér á flótta frá skelfilegum aðstæðum. Leiðarljósið í þessu kerfi sem og öðrum þáttum velferðarsamfélagsins á að vera í þá átt að það verði ekki til hérna hliðarsamfélög. Þetta er fókusinn í öllu því sem við gerum.
Það fyrirkomulag sem lagt er til hérna felst í viðleitni til þess einmitt að búa til aðgreiningu, búa til einangrun. Það er að gera aðstandendum þeirra sem fengið hafa viðbótarvernd eða mannúðarleyfi ekki kleift að njóta fjölskyldusameiningar fyrr en að a.m.k. tveimur árum liðnum eftir veitingu viðbótarverndar eða dvalarleyfis á grundvelli mannúðarsjónarmiða, aðeins að því virtu að viðkomandi hafi fengið dvalarleyfi sitt endurnýjað. Hér stefnum við þá að því að skera okkur úr á norræna vísu ásamt Dönum gagnvart fólki sem hefur fengið þessa viðbótarvernd en ekki alþjóðlega vernd. Þetta eru mjög brattar fyrirætlanir og tilgangurinn er alls ekki ljós nema hann sé sá sem ég gaf mér hér rétt áðan og hér vísa ég aftur í markmið um skilvirkni og mannúð. Hér erum við með einstaklinga sem sannarlega eru í mikilli neyð og vilja leggja sitt til samfélagsins og við eigum sem samfélag að kappkosta við að gera þeim það kleift.
Út frá sjónarhóli jafnaðarmannaflokks þurfum við að búa til regluverk sem veitir fólki í slæmri stöðu meðbyr til að takast á við flókið hlutskipti. Þar skiptir máli að efla stjórnsýsluna sem fer með málaflokkinn sem er til umfjöllunar. Það er mannúðarmál að málsmeðferð sé hröð, skilvirk og dragist ekki um of á langinn og sé vönduð samhliða, ekki bara hröð. En þá komum við líka að því sem skiptir ekki síst miklu máli og er í raun fíllinn í herberginu. Hvernig ætlar þessi ríkisstjórn að efla skilvirkni hjá Útlendingastofnun þar sem málsmeðferðartími umsókna fyrir þann hóp sem er hér til umræðu getur hlaupið á mörgum mánuðum, mánuðum þar sem umsækjendur geta fátt annað gert en að bíða örlaga sinna? Ég sakna þess að ríkisstjórnin hefur ekki enn þá útfært háleit markmið sem sett eru fram í heildarsýn í útlendingamálum, um styttingu málsmeðferðartíma á hvoru stjórnsýslustigi fyrir sig, hvort sem það er lægra stjórnsýslustig Útlendingastofnunar eða æðra stjórnsýslustig kærunefndar útlendingamála. Það hefði svo sannarlega verið heppilegra ef það lægi fyrir hér í dag. Ég veit að ég kann að vera bjartsýn en það væri svo sannarlega æskilegt ef útfærslan á því lægi fyrir áður en þessi lög koma hér endanlega til samþykktar fyrir hið háa Alþingi. Það má leyfa sér að vona.
Virðulegi forseti. Okkar í allsherjar- og menntamálanefnd bíður mjög mikið verkefni. Það kemur í hlut okkar nefndarmanna að staðreyna hvernig þessar leiðir sem eru lagðar til í frumvarpinu séu til þess fallnar að ná markmiðum og hvort það sé á annað borð mögulegt. Við í Samfylkingunni styðjum útlendingalög sem eru til þess fallin að auka skilvirkni í kerfinu, að hraða málsmeðferð, en leiðirnar skipta máli. Við viljum gjarnan fá það útlagt af hálfu þessarar ríkisstjórnar hvernig þessum markmiðum verði náð, vegna þess að eins og frumvarpið lítur út núna þá er ansi margt óljóst.