útlendingar.
Herra forseti. Þann 20. febrúar síðastliðinn birti ríkisstjórnin frétt á heimasíðu Stjórnarráðsins þar sem kynnt var til sögunnar heildarsýn ríkisstjórnarinnar í útlendingamálum. Fram kom að ríkisstjórnin hefði sammælst um aðgerðir í málefnum umsækjenda um alþjóðlega vernd, flóttafólks og innflytjenda. Aðgerðunum er ætlað að stuðla að betri, skilvirkari og skýrari framkvæmd innan málaflokksins og bættri þjónustu til að renna styrkari stoðum undir stjórn útlendingamála, eins og stendur á vefnum. Með þessari heildarsýn væri lögð áhersla á mannúð og virðingu og unnið gegn skautun í íslensku samfélagi. Horft væri sérstaklega til framkvæmdar þessara mála á Norðurlöndum þannig að aukið samræmi sé á milli landa.
Hæstv. félags- og vinnumarkaðsráðherra Guðmundur Ingi Guðbrandsson hefur greint frá því að mikil samstaða sé innan ríkisstjórnarinnar um aðgerðapakkann og hann vonast til þess að aðgerðirnar verði vendipunktur í umræðum um útlendinga og innflytjendamál, en sama dag og ríkisstjórnin gaf frá sér yfirlýsingu um að samstaða hefði náðst um heildarsýn í útlendingamálum lagði hæstv. dómsmálaráðherra fram frumvarp til laga um breytingar á útlendingalögum sem nú er hér til umræðu sem að vísu hefur komið fram í þessari umræðu að nýtur ekki stuðnings ríkisstjórnarflokkanna þar sem Vinstri græn hafa gert við það fyrirvara.
Í greinargerð með frumvarpinu segir að með frumvarpinu sé brugðist við hraðri þróun í málaflokknum og fordæmalausri fjölgun umsókna um alþjóðlega vernd. Þær breytingar sem lagðar séu til miði m.a. að því að samræma lög um útlendinga við löggjöf í öðrum Evrópuríkjum, þá einkum annars staðar á Norðurlöndum. Þá sé einnig stefnt að því að auka skilvirkni innan stjórnsýslunnar og tryggja hagræðingu við nýtingu fjármagns. Þegar rýnt er í tölfræði Útlendingastofnunar undanfarin ár er augljóst að sú fordæmalausa fjölgun umsókna um alþjóðlega vernd sem frumvarpi þessu er ætlað að bregðast við á sér einkum tvær skýringar; annars vegar innrás Rússa í Úkraínu og þá ákvörðun, sem alger eining hefur ríkt um, að bjóða Úkraínumönnum hingað til lands, rétt eins og öll önnur Evrópuríki. Árin 2022 og 2023 sótti samtals 3.961 Úkraínumaður um vernd á Íslandi. Hina skýringuna má rekja til fordæmalausrar ákvörðunar Útlendingastofnunar árið 2019 um að setja umsóknir ríkisborgara Venesúela í sérstaka jákvæða forgangsmeðferð fram yfir aðrar umsóknir og veita þeim öllum viðbótarvernd. Árið 2022 og 2023 sóttu 2.795 ríkisborgarar Venesúela um vernd hér á landi og ekki verður séð, forseti, hvernig tillögum sem fram koma í frumvarpi þessu er ætlað að bregðast við þessum ákvörðunum stjórnvalda.
Hæstv. dómsmálaráðherra hefur nýverið lýst því yfir að fjöldaflóttaákvæði útlendingalaga verði áfram beitt í eitt ár til viðbótar gagnvart Úkraínumönnum, enda sér ekki fyrir endann á innrás Rússa og ljóst að neyð Úkraínumanna er enn mikil og þeir í ríkri þörf fyrir vernd. Kærunefnd útlendingamála komst að þeirri niðurstöðu að ekki væru lengur forsendur til að veita ríkisborgurum Venesúela viðbótarvernd þrátt fyrir að tilmæli Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um að senda ekki fólk til Venesúela, sem fyrri úrskurður byggðist m.a. á, stæðu óhögguð. Þörf þess fyrir vernd er nú metin á einstaklingsgrundvelli og hefur Útlendingastofnun því hafnað flestum umsóknum ríkisborgara Venesúela um vernd. Eftir að úrskurður kærunefndar gekk og eftir að íslensk stjórnvöld hófu brottvísanir á ríkisborgurum Venesúela til Venesúela hefur umsóknum frá þeim fækkað hratt. Á fyrri hluta árs 2023 voru þær að meðaltali 200 á mánuði en í lok árs voru umsóknir á mánuði orðnar færri en 100. Í janúar á þessu ári voru umsóknir frá ríkisborgurum Venesúela einungis 32. Það er því ljóst að úrskurður kærunefndar og sú gífurlega töf sem orðið hefur á afgreiðslu umsókna frá Venesúela hefur leitt til þess að umsóknum frá Venesúela hefur snarfækkað og það áður en það frumvarp sem hér er til umræðu hefur verið samþykkt. Þessi fækkun umsókna frá Venesúela hefur sömuleiðis ekkert með lagabreytingar frá liðnu ári að gera heldur er hér um að ræða breytt mat kærunefndar á aðstæðum í Venesúela.
Umsóknir frá öðrum ríkjum voru árið 2022 og 2023 tæplega 1.000 talsins. Það er svipaður fjöldi og sótti um vernd hér á landi árin 2017–2018. Því er sá fjöldi engan veginn fordæmalaus. Umsóknum fækkaði síðan í u.þ.b. 700 árið 2019 en árið 2020 og 2021, þegar heimsfaraldur geisaði, fækkaði umsóknum niður í rúmlega 500 en leiða má líkur að því að þær ströngu ferðatakmarkanir sem þá giltu hafi haft mikið að segja um fjölda umsókna þau árin. Hæstv. dómsmálaráðherra hefur síðan látið hafa það eftir sér að hún telji að Ísland geti ekki tekið við 500 á ári. Ekki er ljóst hvað hæstv. dómsmálaráðherra á við með þessu og ég velti því fyrir mér hvort flóttafólk frá Úkraínu sé inni í þessu markmiði hæstv. ráðherra.
Það eru einkum tvær tillögur í frumvarpi þessu sem ég vil vara sérstaklega við í 1. umræðu þessa máls. Í fyrsta lagi sú tillaga sem fram kemur í 5. gr. frumvarpsins þar sem enn og aftur er lagt til að 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga falli brott. Breytingar á 2. mgr. 36. gr. hafa nú verið lagðar fram nær árlega allt frá árinu 2019. Á síðasta löggjafarþingi voru gerðar umtalsverðar breytingar á ákvæðinu en nú er gengið svo langt að leggja til algjört brottfall ákvæðisins sem m.a. mun leiða til þess að engar afleiðingar verða af því þegar stjórnvöld draga það í meira en 12 mánuði að taka ákvörðun um hvort umsókn hljóti efnislega meðferð eða ekki. Það mun svo aftur leiða til þess að ekkert kemur í veg fyrir brottvísanir barna sem dvalið hafa hér á landi í meira en 12 mánuði án þess að fá efnislega niðurstöðu í mál sitt.
Ástæða er til að rifja það upp að árið 2019 taldi þáverandi dómsmálaráðherra, núverandi fjármála- og efnahagsráðherra og varaformaður Sjálfstæðisflokksins, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, 10–12 mánaða málsmeðferðartíma vera langan fyrir börn og gerði breytingar á reglugerð um útlendinga sem tryggðu að börn með vernd í öðru ríki sem beðið höfðu eftir niðurstöðu í mál sitt í meira en tíu mánuði fengju efnislega niðurstöðu í mál sitt. Nú, fimm árum síðar, ríkir alger samstaða í ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur um að 12 mánaða biðtími eftir svari sé ekki of langur, hvorki fyrir börn né fullorðna, fella skuli út öll tímamörk þegar um er að ræða verndarmál. Börn með vernd í öðru ríki geta samkvæmt þessari tillögu beðið eftir svari í tvö ár án þess að sú töf hafi nokkur einustu áhrif á stöðu þeirra hér á landi.
Grunnskólabörn á höfuðborgarsvæðinu hafa allt of oft á undanförnum árum þurft að mótmæla langri málsmeðferð þegar til hefur staðið að brottvísa skólasystkinum þeirra sem eignast hafa vini og byggt upp líf sitt hér á landi. Með þeirri tillögu sem hér er lögð til er ljóst að ríkisstjórnin hefur ákveðið að hlusta ekki á mótmæli þessara barna og gleyma öllu um fyrri yfirlýsingar forystufólks ríkisstjórnarinnar sem hefur áður fyrr talið mikilvægt að tryggja börnum ákveðna og sérstaka réttarvernd gagnvart töfum á málsmeðferð. Ómögulegt er að sjá hvernig þessi tillaga samræmist markmiðum um skilvirkni og mannúð í heildarsýn ríkisstjórnarinnar í útlendingamálum.
Síðari tillagan sem mig langar að fjalla hér um í 1. umræðu er sú tillaga sem mér finnst undarleg, sem lögð er fram í 6. gr. frumvarpsins og mælir fyrir um að fjölskyldumeðlimir þeirra sem hlotið hafa viðbótarvernd á Íslandi geti ekki sótt um fjölskyldusameiningu fyrr en sá fjölskyldumeðlimur sem umsókn er byggð á hafi fengið tveggja ára dvalarleyfi sitt endurnýjað. Þetta þýðir að bið flóttafólks sem fengið hefur viðbótarvernd eftir maka sínum og börnum yngri en 18 ára lengist umtalsvert. Hingað til hefur biðtími eftir afgreiðslu á umsóknum um fjölskyldusameiningu verið langur. Nú á að lengja þennan biðtíma um tvö ár og það er ljóst að þessi tillaga rímar ekki við eitt af meginmarkmiðum heildarsýnar ríkisstjórnarinnar um jafnari tækifæri og aukna þátttöku í samfélaginu. Þá verður hvorki séð að hún sé mannúðleg né skilvirk. Raunar segir það sig sjálft að manneskja sem fengið hefur vernd og þarf að óttast um öryggi maka síns og barna um nokkurra ára skeið mun eiga mun erfiðara með að hefja farsæla þátttöku í íslensku samfélagi. Umrædd tillaga mun að mínu mati leiða til þess að inngilding þeirra sem hér hljóta viðbótarvernd og eiga maka og börn í heimaríki verði erfiðari og taki mun lengri tíma en nú. Þá má sömuleiðis álykta að inngilding fjölskyldumeðlima sem beðið hafa í meira en tvö ár við ótryggar aðstæður verði flóknari og erfiðari en ella þegar þau loksins koma hingað til lands.
Í þessu samhengi er mikilvægt að átta sig á því að flóttamenn mega ekki ferðast til heimaríkis. Þetta þýðir því algjöran aðskilnað flóttamannsins við kjarnafjölskyldu sína í a.m.k. þrjú ár ef við gerum ráð fyrir að ferðalag frá heimaríki, málsmeðferð í verndarkerfinu, endurnýjun dvalarleyfis og afgreiðslutími umsóknar um fjölskyldusameiningu taki samtals 12 mánuði, sem er þó varlega áætlað.
Ég átta mig satt að segja ekki á því hvaða tilgangi umrædd breyting á að þjóna. Breytingin mun einungis leiða til vanlíðunar og aukinna félagslegra vandamála eins jaðarsettasta og viðkvæmasta hóps samfélagsins. Eina ríkið á Norðurlöndum sem hefur sams konar ákvæði er Danmörk. Hin ríkin sem á annað borð hafa tímamörk gera það að skilyrði að fólk sæki um fjölskyldusameiningu innan ákveðinna tímamarka en ekki að bíða þurfi lengri tíma eftir því að fá að sækja um. Ég vona sannarlega að umrætt ákvæði verði ekki lengur í frumvarpinu komi það til þess að frumvarpið komi hér inn í 2. umræðu.
Að lokum vil ég gera athugasemd við það að ekki virðist standa til að hin nýkynnta heildarsýn ríkisstjórnarinnar í málefnum útlendinga hljóti nokkra umfjöllun hér á vettvangi þingsins. Málið er stórt og lengi hefur verið kallað eftir stefnu í málefnum innflytjenda og flóttafólks. Í þingmálaskrá fyrir 154. löggjafarþing kom fram að gert væri ráð fyrir að lögð yrði fram á Alþingi tillaga til þingsályktunar um stefnu í málefnum innflytjenda og flóttafólks nú í mars. Í endurskoðaðri þingmálaskrá sem lögð var fram nú í janúar er þingsályktunartillagan um stefnu í málefnum innflytjenda og flóttafólks á bak og burt. Hvergi er minnst á áform um að leggja fram þingsályktunartillögu um stefnu í þessum mikilvæga málaflokki í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins um heildarsýn ríkisstjórnarinnar í málefnum flóttafólks og innflytjenda og engin skuldbinding um fjármögnun fylgir heildarsýninni.
Herra forseti. Ég kalla eftir því að lögð verði fram stefna í málefnum flóttafólks og innflytjenda hér á þingi í stað heildarsýnar sem er bara birt á heimasíðu Stjórnarráðsins án nokkurrar umræðu eða aðkomu þingsins.