154. löggjafarþing — 79. fundur,  4. mars 2024.

útlendingar.

722. mál
[20:34]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Fyrst vil ég segja þegar hv. stjórnarliðar tala um fordæmalausa fjölgun að þegar við erum búin að taka í burtu Úkraínumenn og Venesúela þá erum við með svipaðan fjölda og hér leituðu til lands 2017 og 2018. Það er ekki fordæmalaus fjöldi ef við tökum þessa tvo stóru hópa til hliðar. Mér finnst að við eigum að opna faðminn fyrir Úkraínumönnum eins og við höfum gert og við eigum að taka þátt í því að aðstoða fólk á flótta. Fólki á flótta í heiminum fjölgar stöðugt og nú eru rúmlega 100 milljónir manna á flótta. Við höfum alveg burði til að taka á móti fólki í vanda. Það sem við höfum hins vegar trassað að gera er að bæta innviðina okkar þannig að það sé mögulegt að gera það almennilega, hvort sem við erum að tala um móttöku á flóttafólki eða fólki sem kemur hingað frá útlöndum til að vinna með börnin sín sem ganga í skólana okkar. Það er sannarlega álag á okkar innviði en við höfum trassað að byggja þá upp til að geta tekið á móti fólki. Ég segi fyrir mig að þeir sem halda það að við getum haft einhverja algjöra stjórn á því hverjir leita hingað eftir vernd eru að fara með blekkingar. Við getum það ekki. Við getum auðvitað verið með alls konar skilyrði og útfærslu á okkar lögum og mér finnst að við eigum að líta á löndin í kringum okkur og athuga hvað þau eru að gera vel. En í þessu frumvarpi virðast augu stjórnarliða helst beinast til Danmerkur sem er með hörðustu og réttindaminnstu útlendingastefnuna.