útlendingar.
Herra forseti. Það var ýmislegt sem kom fram í máli hv. þingmanns sem hægt væri að gera athugasemdir við í langri ræðu. En þegar verið er að tala um fjölskyldusameiningar þá er verið að horfa til Danmerkur en ekki til hinna Norðurlandanna sem setja skilyrði um að það þurfi að sækja um fyrir einhvern ákveðinn tíma og það er það sem ég var að vísa til í ræðu minni hér áðan. Markmið útlendingalaga, eitt af þeim, er mannúð og skilvirkni. Mér finnst að mannúðin mætti nú vera ofar í þeim frumvörpum sem koma frá hæstv. ráðherrum Sjálfstæðisflokksins og t.d. í síðasta útlendingafrumvarpi sem fór hér í gegnum þingið þá kom orðið skilvirkni 17 sinnum fyrir í greinargerð en mannúðin mjög sjaldan. Í þessu frumvarpi hefur aðeins orðið niðurskurður á skilvirkni og það kemur bara átta sinnum fyrir en mannúðarhugtakið mjög sjaldan. Það er mikilvægt að löggjöfin okkar sé með þessi markmið, mannúð og skilvirkni, en að mannúðin komi alltaf á undan.